Innlent

„Neyðar­á­stand yfir­vofandi“ hjá Land­helgis­gæslunni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Flugvirkjar að störfum hjá Landhelgisgæslunni.
Flugvirkjar að störfum hjá Landhelgisgæslunni. vísir/vilhelm

Landhelgisgæslan segir neyðarástand yfirvofandi vegna verkfalls flugvirkja. Nú blasi við að þyrlufloti Landhelgisgæslunnar stöðvist á næstu dögum, í síðasta lagi um miðja næstu viku. Engin björgunarþyrla verði þá til taks á landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Ótímabundið verkfall flugvirkja hófst 6. nóvember síðastliðinn en samningar hafa verið lausir frá 31. desember 2019. Verkfallið nær til allra flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni sem sinna ekki neyðarþjónustu.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.Vísir/vilhelm

Undanþágubeiðnum hafnað ítrekað

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að ef fram fari sem horfi muni þyrlufloti Gæslunnar stöðvast í síðasta lagi um miðja næstu viku, þegar reglubundin skoðun á TF-GRO, einu starfhæfu þyrlu stofnunarinnar, þarf að fara fram.

„Hin björgunarþyrlan, TF-EIR, verður ekki til taks eins og áætlað var þar sem vinna við skoðun sem hún er í hefur legið niðri í verkfallinu,“ segir í tilkynningu.

Vinna við viðhaldsskipulagningu hafi jafnframt legið niðri í verkfallinu sem hafi þau áhrif að undirbúningur skoðana, eftirlit og frágangur viðhaldsgagna sé enginn. Ítrekuðum undanþágubeiðnum frá verkfalli vegna viðhaldsskipulagningar hafi verið hafnað af Flugvirkjafélagi Íslands.

„Eftir sem áður þá blasir nú þegar við að ekki verður alltaf tiltæk björgunarþyrla og áhrifa verkfallsins mun gæta fram á næsta ár hvað varðar björgunarþjónustu LHG,“ segir í tilkynningu.

Þyrlan gæti stöðvast fyrr

Þá hafi verkefnum og æfingum verið frestað til að unnt sé að bregðast við neyðartilfellum en ljóst sé að slíkt ástand geti ekki varað lengi.

„Neyðarástand skapast í síðasta lagi um miðja næstu viku þegar þyrlan stöðvast en hafa verður í huga að þyrlan getur stöðvast fyrr vegna óvæntra bilana. Engin björgunarþyrla verður þá til taks á landinu sem getur haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér,“ segir í tilkynningu.

Annarra áhrifa verkfallsins muni jafnframt gæta næstu vikur og mánuði. Fresta þurfi að taka leiguþyrluna TF-GNA í gagnið sem væntanleg er í janúar. Þá sé TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, óflughæf sem og flugvél Isavia, TF-FMS, sem Landhelgisgæslan sinnir viðhaldi á.

Ástandið þegar grafalvarlegt

Haft er eftir Georg Kr. Lárussyni forstjóra Landhelgisgæslunnar í tilkynningu að úrræði Landhelgisgæslunnar séu senn á þrotum. Enn fremur verði að hafa í huga að Landhelgisgæslan sé ekki aðili að deilunni heldur sé hún á milli Flugvirkjafélagsins og ríkisins.

„Það skiptir þjóðina máli að Landhelgisgæslan hafi björgunarþyrlur til taks ef vá ber að garði. Það er erfitt að hugsa þá hugsun til enda ef mannskaði verður vegna þessa. […] Hlutverk Landhelgisgæslunnar er að tryggja að hægt sé að bregðast við neyðartilfellum sem upp koma. Ástandið er þegar orðið grafalvarlegt en ljóst er að neyðarástand mun ríkja í næstu viku þegar engin þyrla verður til taks.“

Átján flugvirkjar starfa hjá Landhelgisgæslunni. Ef frá eru dregin launatengd gjöld voru meðalheildarlaun flugvirkjanna í fyrra 1.764.291 kr. á mánuði, að því er fram kom í skriflegu svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn fréttastofu fyrr í mánuðinum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×