Viðskipti innlent

Ingi­björg Arnars­dóttir nýr fram­kvæmda­stjóri hjá Isavia

Samúel Karl Ólason skrifar
Ingibjörg Arnarsdóttir.
Ingibjörg Arnarsdóttir.

Ingibjörg Arnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra á nýju sameinuðu svið fjármála og mannauðs hjá Isavia.

Ingibjörg Arnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra á nýju sameinuðu svið fjármála og mannauðs hjá Isavia. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia þar sem einnig segir að Ingibjörg hafi mikla stjórnunarreynslu á vettvangi fjármála og mannauðs.

Nú síðast hafi hún starfað sem framkvæmdastjóri fjármala-, mannauðs og verkefnastjórnar hjá Reiknistofu bankanna og haft þar yfirumsjón með fjármálum fyrirtækisins, mannauðsmálum og verkefnastýringu.

Ingibjörg starfaði þar áður hjá Valitor, fyrst sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og síðan sem framkvæmdastjóri stjórnunar- og mannauðs. Hún er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á endurskoðun og meistaragráðu í fjármálum frá Cass Business School/City University í London.

Svið fjármála og mannauðs hjá Isavia er önnur tveggja stoðeininga sem er hluti af móðurfélagi Isavia, sem annast rekstur Keflavíkurflugvallar. Sviðið sinnir þó jafnframt samstæðu Isavia í heild sinni.

„Við hjá Isavia hlökkum til að fá Ingibjörgu til starfa,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia í áðurnefndri tilkynningu. „Það er ljóst að þekking hennar og reynsla, nú síðast hjá Valitor og Reiknistofu bankanna, mun koma Isavia til góða í þeim verkefnum sem fram undan eru.“

Ingibjörg tekur sæti í framkvæmdastjórn Isavia og hefur störf þann 1. desember næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×