Sænskir nemendur grunaðir um skipulagða útbreiðslu veirunnar Atli Ísleifsson skrifar 30. nóvember 2020 13:08 Um 70 þúsund manns búa í Östersund við Storsjön í Jämtland. Getty Lögregla í sænska bænum Östersund rannsakar nú hvort að nemendur í framhaldsskóla hafi vísvitandi reynt að breiða út kórónuveiruna í þeirri von að mynda mótefni og þannig geta dimmiterað næsta vor.
SVT greinir frá málinu en búið er að tilkynna fjölda nemenda í framhaldsskóla í bænum til lögreglu. Eru nemendurnir sagðir hafa reynt að hafa uppi á smituðum einstaklingum, reynt að smitast sjálfir og svo reynt smita fleiri. Nemendurnir eru sagðir hafa reynt að smitast sjálfir til að geta fagnað stúdentsprófunum almennilega líkt og hefð er fyrir í Svíþjóð. Haft er eftir Monicu Sandström, formanni nemendafélagsins í Jämtlands Gymnasium, að hún kannist ekki við þessa hegðun nemenda, en að vitað sé að fjölmargir séu þreyttir á fjarkennslu og samkomutakmörkunum. Viti hún til þess að margir hafi sagst vona að þeir myndi mótefni til að geta fagnað lokum framhaldsskólans í vor. Hún hafi þó túlkað allt slíkt tal sem grín. Hún fordæmir þá hegðun sem einhverjir kunni nú að vera grunaðir um og segir hana sýna „ótrúlegt tillitsleysi“ í garð annarra. SVT segir að enn sem komið sé sé enginn nemandi með stöðu grunaðs manns, en að málið sé og verði áfram til rannsóknar hjá lögreglu.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Svíþjóð Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira