Sigurganga Börsunga stöðvuð í Cádiz Arnar Geir Halldórsson skrifar 5. desember 2020 22:02 Alvaro Negredo vísir/Getty Barcelona hafði unnið þrjá leiki í röð þegar liðið heimsótti Cadiz í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld og vonuðust Katalóníubúar eftir því að sínir menn væru að komast á beinu brautina. Heimamenn í Cadiz tóku hins vegar frumkvæðið og komust í forystu strax á 8.mínútu. Hún hélst þeim allt þar til á 57.mínútu þegar Pedro Alcala varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Það voru hins vegar ekki Börsungar sem fundu sigurmarkið því Alvaro Negredo, fyrrum leikmaður Man City, reyndist hetja Cadiz með því að skora á 63.mínútu. Óvæntur 2-1 sigur Cadiz staðreynd og situr Barcelona í sjöunda sæti deildarinnar með fjórtán stig eftir 10 leiki, tólf stigum minna en topplið Atletico Madrid. Spænski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Leik lokið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Leik lokið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn