Sænska úrvalsdeildin á Stöð 2 Sport Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. apríl 2020 16:00 Glódís Perla Viggósdóttir er leikmaður Rosengård í Svíþjóð. Vísir/Getty
Stöð 2 Sport hefur tryggt sér sýningarrétt frá leikjum sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta og mun hefja beinar útsendingar frá henni þegar nýtt keppnistímabil hefst. Þetta er í fyrsta sinn sem leikir deildarinnar verða sýndir í beinni útsendingu hér á landi en margar af bestu knattspyrnukonum Íslands hafa spilað í Svíþjóð undanfarin ár og gera enn. Glódís Perla Viggósdóttir er lykilmaður í íslenska landsliðinu og leikur hún með Rosengård sem varð sænskur meistari síðastliðið haust. Þá hefur Elísabet Gunnarsdóttir þjálfað Kristianstad um árabil en Svava Rós Guðmundsdóttir leikur með liðinu. Sif Atladóttir, sem spilað hefur lengi með Kristianstad, tilkynnti fyrr á árinu og að hún myndi ekki spila meira á þessu ári þar sem hún væri barnshafandi. Guðbjörg Gunnarsdóttir og Guðrún Arnardóttir leika með Djurgården og Anna Rakel Pétursdóttir er á mála hjá Uppsala. Eins og víða þá hefur knattspyrnuvertíðinni í Svíþjóð verið frestað vegna kórónuveirufaraldursins en stefnt er að því að fyrstu leikirnir á nýju tímabili fari fram í júní.
Sænski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira