Skoðun

Ábyrgð á pakkaferðum er tímaskekkja

Þórir Garðarsson skrifar

Lög um pakkaferðir eru í dag einhver mesta tímaskekkja sem þekkist á neytendamarkaði. Sú ábyrgð er sett á ferðaskrifstofur að setja belti og axlabönd á kaupendur pakkaferða, þannig að þeir haldi að þeir séu gulltryggðir ef eitthvað fer úrskeiðis. Með þessum lögum gerir ríkisvaldið kröfur um viðskiptaöryggi sem gengur miklu lengra en þekkist almennt í viðskiptalífinu.

Bílasali þarf enga tryggingu að setja fyrir því að viðskiptavinurinn fái bílinn afhendan, þó greiðsla hafi verið innt af hendi. Fyrirtæki sem byggir hús og selur er ekki krafið um tryggingu fyrir því að innborgun á verk skili sér til kaupandans. Hvers vegna ætti ferðaskrifstofa að leggja eigið fé að veði eða kaupa dýra tryggingu til að ferðafólk fái umsamda þjónustu þegar aðrar ódýrari og skilvirkari leiðir eru færar?

Falskt öryggi

Lögin um pakkaferðatryggingar geta veitt falskt öryggi. Þeir sem skipuleggja ferðir sínar sjálfir, bóka flug, hótel, bílaleigubíla, skoðunarferðir og annað ferðatengt fá ekki þessa ábyrgð. Enda þurfa þeir ekki á henni að halda þar sem kaupendur ferðaþjónustu njóta annarra víðtækra trygginga t.d. þegar þeir borga með kreditkortum. Þeir geta líka keypt forfalla- eða ferðatryggingar og oft eru ferðatryggingar innifaldar í heimilistryggingu. Það eru margar leiðir til að tryggja endurgreiðslu ef ferðamönnum tekst ekki að nýta fyrirframgreidda þjónustu. Þetta öryggi getur að sjálfsögðu einnig átt við um kaup á pakkaferðum. Sérstök ábyrgðartrygging í umsjá og eftirliti stjórnvalda er algjörlega óþarfi. Það sást vel þegar ferðaskrifstofa sem var svipt leyfi í desember síðastliðnum að viðskipavinir hennar fengu aðeins 10% af tapi sínu greitt úr ábyrgðartryggingunni.

Arfleifð horfinna tíma

Þessar lögbundnu ferðaskrifstofutryggingar eru arfleifð frá því fyrir mörgum áratugum þegar pakkaferðir í leiguflugi voru algengasti ferðamátinn og ferðalangar nánast bjargarlausir ef ferðaskrifstofa gat ekki staðið við afhendingu þjónustunnar og varð gjaldþrota. Þá kom ríkið til skjalanna með heimflutning og aðrar reddingar.

Skekkir samkeppnisstöðuna

Sjálfsagt geta flestir fallist á að óþarfi sé að skekkja samkeppnisstöðu ferðaskrifstofa með þessum kostnaðarsömu og óþörfu kröfum um ábyrgðartryggingar sem aðrir þurfa ekki að burðast með. En þá kemur að fjallgarðinum. Íslensku lögin um þetta byggjast á innleiðingu tilskipunar ESB frá 2015 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Ísland neyðist til að burðast með þessar kröfur þangað til Evrópusambandið breytir þeim.

Þar kemur að Guðlaugi Þór

Einhverjum þætti það bratt fyrir Íslendinga að reyna að vinda ofan af Evrópureglum af því tagi sem margir halda ranglega að bæti neytendavernd en vinnur í raun gegn samkeppni. Að mínu mati er þetta verðugt viðfangsefni fyrir íslensku utanríkisþjónustuna, enda efa ég ekki eitt augnablik að þessar reglur teljast jafn vitlausar í öðrum Evrópulöndum. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra mætti að skaðlausu setja öflugan mannskap í þetta verkefni. Það er ekki eftir neinu að bíða.

Höfundur er stjórnarformaður Gray Line




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×