Skoðun

Hve­nær mun Al­þingi setja þegna sína í forgrunn?

Sunna Arnardóttir skrifar

Ég skil ekki stjórnmál. Ég hef ekki einu sinni áhuga á þeim. Almennt séð finnst mér stjórnmálafólk bara vera að kvarta yfir hverju öðru til þess að kvarta, til þess að vera á móti hinum, til þess að rífa hina niður af stalli og setja sjálfan sig þangað upp. Og almennt séð er mér alveg slétt sama hvað gengur á í Alþingi.

Þess vegna mun ég ekki reyna að ræða hvað bókun 35 snýst um, hvað hún setur fram, eða hvað hún stendur fyrir. Ég hreinlega er ekki hæf til þess.

En ég veit hvað EES-samningurinn stendur fyrir, og það að Ísland virði þann samning er mér mikilvægt. Og það er mikilvægt að allir íslendingar - búsettir erlendis og á klakanum - viti afhverju.

Byrjum á einföldum upplýsingum: Ísland er hluti af evrópska efnahagssvæðinu (EES) og Schengen svæðinu.

EES veitir öllum íslendingum frelsi til þess að færa fjármuni, veita þjónustu, starfa, og ferðast frjálst um öll önnur EES ríki. EES samningurinn veitir jafnframt frelsi til þess að ferðast milli allra ríkja í Evrópusambandinu, óháð því hvort þau séu hluti af EES, án þess að þurfa að sækja um ETIAS áritun áður en ferðast er.

EES veitir okkur frelsi til að vera til innan Evrópu, líkt og við værum heima hjá okkur.

Schengen leyfir íslendingum að ferðast milli landa án vegabréfs, en krefst þess að einstaklingar sæki um ETIAS áritun áður en ferðalagið hefst.

Þetta virkar ekki eins og það skipti miklu máli, hvort að Ísland sé hluti af Schengen eða EEA, fyrr en litið er til þeirra íslendinga sem lifa og starfa erlendis.

Muni Ísland missa EES réttindin sín, þá munum við sem búum hérna úti lenda í vandræðum.

Við sem höfum stofnað heimili og fjölskyldur, gætum lent í því að vera rifin burt frá ástvinum okkar bara því að dvalarleyfið okkar er ekki talið réttmætt lengur. Við sem störfum hér úti gætum misst starfsréttindin okkar ef við erum ekki nægilega fljót að breyta dvalarleyfum okkar og fá tilskildar undirritanir úr atvinnulífinu. Við sem höfum viðskipti hér erlendis gætum þurft að endurskipuleggja starfsemina okkar, og mögulega uppsetningu fyrirtækja – sem gæti haft erfiðar fjárhagslegar afleiðingar fyrir smærri fyrirtæki og sjálfstæða verktaka.

Við á Íslandi erum svo vön því að halda að ekkert breytist, við getum átt kökuna okkar og étið hana líka. En það er nóg að líta til Bretlands til að sjá að svo er ekki, þar sem fjöldi Breskra ríkisborgara hafa misst dvalarrétt sinn og verið slitin frá fjölskyldum, störfu, fyrirtækjum, og margra áratuga lífi sem þau hafa byggt upp í öðrum löndum í Evrópu – bara vegna þess að Bretland ákvað að ganga úr Evrópusambandinu fyrir áratug síðan (og voru ekki með EEA samning).

Evrópa hefur sýnt það og sannað að öll þolinmæði er þrotin gagnvart þjóðum sem halda að þau geti fengið öll réttindi án þess að virða samninga og lög bakvið þessi réttindi, og grimmt er tekið á hvers kyns breytingum er kemur að brostnum samningum og úrsögnum.

Ég hef miklar áhyggjur af framtíðinni þar sem ég horfi upp á Alþingi – sem á að vera að vinna fyrir hagsmuni íslendinga – rífast um hvort að einhver bókun eigi að vera afgreidd, í staðinn fyrir að setjast niður og hugsa “ef bókunin er ekki nægilega góð, HVERNIG getum við breytt henni svo við stöndum við okkar skuldbindingar gagnvart EES og viðhöldum réttindum og frelsi íslenskra ríkisborgara.”

Ég get ekki bara „komið heim“, því mitt „heim“ er hérna úti, ekki á klakanum. Ég hræðist framtíðina, þar sem ráðafólk Íslands mun rífa frá mér það heimili og líf sem ég hef byggt upp hér úti, einfaldlega til þess að vera á móti hvert öðru.

Vinsamlegast hættið að halda að allt reddist án þess að lyfta þurfi fingri. Vinsamlegast hættið að rífast eins og um sé að ræða já/nei vandamál, og byrjið að hugsa í lausnum. Vinsamlegast takið ykkur saman og vinnið í því að viðhalda því frelsi sem íslenska þjóðin hefur vanist.

Íslendingar eiga það skilið að Alþingi setji allt hvabb á hakann og setji þjóðina í forgrunn.

Höfundur er íslendingur sem er búsett erlendis með dvalarleyfi í gegnum EES samninginn.




Skoðun

Sjá meira


×