Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar 15. október 2026 12:31 Íslensk menntamál standa á alvarlegum krossgötum árið 2026. Sögulegt lágmark í PISA-mælingum og almennt úrræðaleysi vekur upp áleitnar spurningar: Hvað fór úrskeiðis eftir að grunnskólinn var fluttur til sveitarfélaganna og af hverju er rödd skólastjóra of fafleg grundun að kafna í PR flóði og pólitísku karpi? Á hverju ári skellur yfir okkur sama PISA-fárið. Nýjustu tölur sýna svarta mynd: Ísland situr á botni Norðurlandanna þegar kemur að lesskilningi, stærðfræðilæsi og náttúruvísindum. En á meðan fjölmiðlar hamast við að mála skrattann á vegginn og sjálfskipaðir „besserwisserar“ kenna „kerlingavæðingu“ eða skólakerfinu um allt sem miður fer, þá blasir við dýpri og kerfisbundnari krísa. Skýringanna er ekki að leita hjá kennurum eða nemendum, heldur í umgjörðinni sem við höfum búið þeim. Hvar liggur fagmennska skólastjóra og kennara? Við vitum mjög margt um það hvað einkennir og skapar gott skólastarf og stuðlar á árangursríkiri kennslu. Við sjáum samhengi faglega vel grundaðra og útfærðra starfshátta við þann árangur sem við getum mælt hjá nemendum; í formlegum skólagreinum og í félagslegum þáttum, líðan, vætingum og viðhorfum nemenda. Við vitum einnig að þegar foreldrar sýna áhuga á skólagöngunni og vinna náið með skólanum og umsjónarkennurum þá byggist upp traust sem beinlínis stuðlar í sjálfu sér að bættum árangri og víðtækari þroska barnanna. Því miður hafa PISA mælingar á árangri íslenskra skólabarna sýnt lakari stöðu í lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum heldur en við hljótum að vænta – og það sem verra er að árangri hefur farið nokkuð ört hrakandi. Skor íslenskra barna byrjaði neðar á þessarri öld og hefur fallið - jafnvel hraðar en hjá mörgum nágrönnum. Söguleg þróun í lesskilningi á Íslandi sýnir hvernig skorið hefur hrapað úr 507 stigum árið 2000 niður í sögulegt lágmark, 422 stig, árið 2025. Aðeins 56% íslenskra 15 ára nemenda náðu grunnhæfni í lestri skv. PISA mælingum Var grunnskólanum breytt? (Miðstýring eða fagleg forysta?) Þegar rekstur grunnskólanna var fluttur yfir til sveitarfélaganna á sínum tíma, var ekki lagt upp með eðlisbreytingu eða neinn sérstakan faglegan áttavita og skýr árangursmarkmið. Breytingin átti fyrst og fremst að vera rekstrarlegt viðfangsefni – sem sveitarfélögunum var falin. Skólastjórafélagið varaði strax við því að blanda rekstrarforsendum menntunar saman við fjármögnun á fráveitu, skolphreinsun og snjómokstri einstakra sveitarfélaga. Þau varnaðarorð kunna einmitt að hafa reynst spásögn. Á vettvangi sveitarfélaganna hefur ótvírætt orðið til kostnaðarsöm millistjórnendavæðing. Í stað þess að treysta skólastjórum faglega og veita þeim umboð og svigrúm til skólaþróunar, er andað ofan í hálsmálið á þeim með þröngsýnum Excel-útreikningum og baunatalningu. Fjárhagsleg skammtímasjónarmið ráða alltof víða för: bókasöfnum er lokað, bókakaup skorin niður, vettvangsferðir gerðar erfiðar og stoðþjónusta, ræsting og mötuneyti útvistuð til verktaka úti í bæ. Í staðinn hafa verið keyptar tæknivörur og búnaður sem á sér alltof oft uppruna úr öðru samhengi en grundaðri þekkingu á uppeldi og skólastarfi. Þessi þróun hefur veikt það sem er einna mikilvægast fyrir góðan skóla: faglega og ábyrga forystu skólastjóra og virkur stuðningu við kennara inni í kennslustofunni (instructional leadership). Í stað þess að skólastjórar séu leiðandi málsvarar menntunar í opinberri umræðu, er skólastarfi stýrt á forsendum pólitíkusanna og excelvæddra embættismanna og mannauðsstjóra sveitarfélaganna. Þróun OECD-meðaltalsins sýnir jafna og alþjóðlega hnignun á öllum þremur sviðum, en hrunið á Íslandi er dýpra og hraðara en hjá flestum nágrannaþjóðum þar sem við byrjuðum neðar. Latínuskólakennarar og markaðsöflin Annar áhrifaþáttur í hnignun læsis og vísindalæsis gæti vissulega verið stytting náms til stúdentsprófs og breytt áhersla í námskrá. Gamaldags „latínuskólakennarar“, sem aldrei sættu sig við að grunnskólinn væri fyrir öll börn í árgangi og viðurkenna ekki að einstaklingsmunur er raunverulegur og eðlilegur, urðu bandamenn nýfrjálshyggju og viðskiptalífsins - í að krefjast aukinnar aðgreiningar nemendahópa að nýju. Klisjukenndar og afvegaleiðandi kröfur atvinnulífsins um þörf á „að fá ungt fólk fyrr út á vinnumarkað“ – voru notaðar til að knýja fram styttingu náms til stúdentsprófs. (Gripið var til ósannra fullyrðinga um að t.d. í Danmörku lykju „allir“ stúdentsprófi 19 ára og væru þar með virkir á vinnumarkaði ef svo mátti skilja.) Styttingin varð bókstaflega og allan tímann pólitísk ákvörðun og klárlega mjög mótíveruð af kreddum um niðurskurð ríkisútgjalda og skattalækkanir. Af þessu leiddi að latínuskólakennararnir fengu lykiláhrif í breytingu á námskrá grunnskóla - sem ma. fól í sér að óhlutbundið (abstract) og flókið efni var flutt úr framhaldsskólum niður í grunnskóla. Algebra og bókstafareikningur yfirtaka kennslubækur frá tíu ára aldri barna, og málfræði og setningafræði er innleidd á kostnað almenns málskilnings og gæðalestrar. Þessi flutningur á abstract námsþáttum fer algerlega öndvert við þekkingu okkar á hugsanagetu og ályktunarhæfni 12-15 ára barna - þar sem við vitum að einungis 20-30% árgangs er líkleg til að ná góðum (viðunandi) tökum á óhlutstæðri hugsun fyrir 16 ára aldurinn. Með þessu er því vegið að árangursmöguleikum verulegs hlutfalls af hverjum árgangi. Námskráin hefur almennt breyst í fljótandi markmiðalista þar sem kennarar ströggla við að leita uppi og útbúa námsefni sjálfir - hver og einn í sínu horni - og ganga með því á annan undirbúningstíma. Aukin áhersla á árgangamiðun í námskrá og markmiðssetning í því samhengi þvingar fleiri kennara til að beita „meðaltalskennslu“ þar sem allir nemendur eru að glíma við sama eða sambærileg viðfangsefni á sama tíma - sem óhjákvæmilega þrengir þá þann hóp sem nær að blómstra; bráðþroska nemendur bíða og finna ekki ögrun í efni og aðferð og seinfærari nemendur, kannski fæddir síðari hluta ársins eru alltaf að bagsa við efni sem er þeim ofviða – og of mörg börn úr þeim hópum eru fyrr en síðar ranglega skilgreind með námsvandamál. Samkvæmt PISA-gögnum eiga íslenskir nemendur einnig í miklum erfiðleikum með þekkingarfræðilegan skilning í vísindum. Námskrá leggur greinilega umtalsverða áherslu á ótengda prófþætti, á staðreyndir, en minni áherslu á „vísindalega aðferð“ eða hvernig vísindamenn leggja í athuganir, rannsóknir og komast að lokum að niðurstöðum. Þetta virðist giska ólíkt því sem gerist t.d. í Danmörku og Hollandi þar sem gagnrýnin hugsun og rannsóknaraðferðir eru í forgrunni og framlag vísindanna nýtur trausts. Í stærðfræðilæsi féll Ísland niður í 450 stig árið 2025 (besta skor var 515 stig árið 2003). Hvað með ábyrgð foreldra? Það er ekki hægt að ræða menntamál án þess að líta til hlutar foreldranna. Snjalltæki og tölvuleikir hafa yfirtekið hversdagsheim barnanna og foreldranna einnig - og talsamband næst varla við máltíðir – né þar sem fólk ferðast saman í bíl. Segja má að á meðan lesi bókaþjóðin ekki lengur - og stórir hópar svara því til að þeir lesi sjaldan eða aldrei (annað en skólaverkefni). Við sjáum algerlega ríkjandi „klúbbavæðingu“ íþróttastarfs og hrikalega kostnaðarvæðingu og um leið mjög keppnisdrifnar áherslur í boltaíþróttamenningu á Íslandi langt umfram það sem víða gerist í nágrannalöndum. Þessar breytingar hafa klárlega tekið yfir frjálsa útileiki hjá umtalsverðum hluta grunnskólabarna og skapar bæði þreytu og stress hjá mörgum fjölskyldum. Það sem verra er, þá virðast margir foreldrar vanvirða rétt barnanna til skólanámsins og ganga gegn eigin ábyrgð á námi barna sinna. Það þykir sjálfsagt að taka börn (jafnvel heimildarlaust) út úr skyldunámi vikum saman til að fara til sólarstranda, og svo formæla sömu foreldrar umsjónarkennaranum ef hann gerir kröfur um að barnið læri í fríinu. Slíkt athæfi er hreinlega ólöglegt og óþekkt í flestum nágrannalöndum okkar. Hvað ef „boltaforeldrar“ mundu setja helminginn af þeim metnaði sem þeir sýna á hliðarlínunni bak við skólaárangur barnanna sinna, væri staðan þá etv. önnur? Íslenskt samfélag stækkar en lýðfræðin sýnir að fólki á aldrinum 25 ára og yngri fer fækkandi vegna lækkandi fæðingartíðni. Innflutningur vinnuafls ber kerfið uppi, sem ætti að kalla á stóraukna áherslu á fjölmenningarlegt nám og málskilning í skólum sem núna er verulega ábótavant. Það virðist blasa við lögbundnum skyldum gagnvart þeim hluta barna sem ekki eiga íslensku að fyrsta máli er illa sinnt. Lágt hlutfall nýbúa nær árangri gegn um framhaldsskóla og þeir tiltölulega fáu sem það gera stefna greinilega til baka til „móðurlandsins“ - þar sem þau geta notið ódýrari skólagöngu og tækni og háskólanámi. (Til að mannfjöldaþróun á Íslandi nái jákvæði jafnvægi - með „náttúrlegri fjölgun(fæðingum)“ virðist þurfa að tryggja endurkomu umtalsverðs hóps íslandsfæddra fjölskyldna og um leið draga úr aðflutningi „ófjölskyldubundins“ farandverkafólks sem staldrar styttra við.) Er PISA mæling einhver endanlegur og algildur sannleikur? Við megum líka spyrja okkur gagnrýnt: Er PISA óumdeildur mælikvarði? Fyrir dverg-málsamfélag eins og Ísland er þátttakan gríðarlega dýr. Prófagerðin, þýðingar og framkvæmd hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hafa sætt réttmætri gagnrýni. Hvers vegna er PISA ekki úrtakskönnun hér á landi líkt og í nágrannalöndunum? Þegar rúmlega 12% árgangsins (649 nemendur af 5.083) mæta hreinlega ekki til prófs án skýringa, hlýtur það að skekkja heildarmyndina og alþjóðlegan samanburð verulega. Þrátt fyrir allt sýna gögnin að krakkarnir okkar eru heilt yfir öflugir, félagsleg tengsl eru sterk og einelti er með minna móti. En alltof margir strákar skila ekki ásættanlegum árangri í prófum; þeir missa fótanna og byggja ekki upp neinn árangursvilja eða almennt jákvæða sjálfsmynd - og kvíðafaraldur, neysla og sjálfsvígshætta er raunveruleg. Samantekt á öllum greinum sýnir samfellt hrun frá árinu 2018. Heildarskor Íslands nær sögulegu lágmarki (1313 stig samanlagt), sem staðfestir langvarandi og óleysta kerfislæga hnignun. Enginn vafi er að árangur nemenda við lok grunnskóla og í gegn um framhaldsskóla er ekki nægilega góður. Gildir þá einu hvaða mælingar við notum – og hvort við birtingu árangursmats eru notaðar tölustafir eða skilgreindur bókstafakvarði. Nýleg umræða á vettvangi fjölmiðla (RÚV) um skort á sókn nemenda í raunvísindi (STEM-greinar) í háskólunum staðfestir þetta - sem og endurteknar PISA mælingar. Of margir ná engum árangri Of fáir ná afburða-árangri Of fáir nýbúar skila sér til árangurs í gegn um grunnskólann Of mikill munur kemur fram eftir búsetu og félagslegri skiptingu Sérstakt áhyggjuefni hve takmarkaðan skilning 15 ára hafa á raunnsóknum og reynslurökum – og hve staðreyndir eru taldar „afstæðar/valkvæðar“ Leiðin út úr skugganum Stofnun pólitískra aðgerðahópa hjá sveitarfélögunum til að bregðast við PISA mun engu bjarga. Skólamálin verða ekki heldur leyst af app-sölumönnum eða tilbúnum „pökkum“ sem keyptir eru inn án samhengis. Það á heldur ekki að vera verkefni kjarafélags kennara að marka menntastefnuna þótt að sjálfsögðu sé mikilvægt að faglega studdar kröfur þeirra nái inn á þann vettvang. Við eigum fullt af vel menntuðum og metnaðarfullum skólastjórum og kennurum sem vilja gera vel. Þeir verðskulda að fá stuðning og frelsi til að leiða skólastarfið á faglegum forsendum. Menntamálaráðherra gerði best með því að kalla skólastjórana og háskólafólkið að borðinu til góðviljaðrar greiningar á stöðunni – til að leggja upp skýringarmódel og teikna upp raunverulega aðgerðaráætlun í samræmi við það; í bili virðist stranda á veldi pólitískra álitsgjafa, þröngsýnna hagfræðinga og PR fólks með meira og minna enga þekkingu á menntamálum – standandi í skylmingum við formann Kennarasambands Íslands. Fullyrða má að námsefnisgerð í þágu heildarinnar þarf að taka (aftur) inn í farveg miðlægrar vinnslu á forsendum bestu þekkingar og með virku samstarfi við bestu kennarana – og þá með áherslu á raunsæ markmið og þroskamun innan árganga. Einnig má fullyrða að það gæti orðið til bóta að endurnýja virka vettvangsþjálfun kennaranema – þar sem þeir njóta hvatningar og leiðsagnar bestu kennarar. Um leið þarf auðvitað að margfalda tækifæri kennara til endurmenntunar og starfsþróunar í samstarfi innan skóla og ekki síður milli skóla, bæði svæðisbundið og á landsvísu. Í samhenginu er rétt að hvetja til sem virkastrar þáttöku í samstarfsverkefnum Evrópsku-menntaáætlananna. Kannski mætti svo samhliða freista þess að byggja upp „próftökuvilja nemenda“ og rækta metnað allra skóla til að skila sínu besta – um leið og bæta verður úr þeim augljósu og skaðlegu ágöllum sem eru á þýðingum og aðlögun prófanna. Að maður nú ekki minnist á endurtekna „tæknifeila“ sem hafa raskað próftökum í fleiri tilvikum. (Í samhenginu má benda á að í Bretlandi er langþróuð próftöku- og eftirlitsmenning gagnvart skólum, í samkeppni og sama er að segja um að Eistland hefur innleitt stíft eftirlit og samanburðargreiningar, – en þessar tvær Evrópuþjóðir skila stabílli mælingu í PISA samanburði síðustu 25 ár og skera sig þannig frá öðrum Evrópuþjóðum.) En; - ef sveitarfélögin ráða hreinlega ekki við það hlutverk að reka faglega burðugan grunnskóla, til árangurs fyrir öll börn, þá eigum við ekki að hika við að ræða af sæmilegum góðvilja og í alvöru um grundvallarspurninguna: Á að skila grunnskólanum aftur til ríkisins? Höfundur er fyrrverandi skólastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál PISA-könnun Mest lesið Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun