Danski landsliðsþjálfarinn segir að Hansen verði með á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. janúar 2021 12:30 Nikolaj Jacobsen segir að hann geti nýtt krafta Mikkels Hansen á HM í Egyptalandi. getty/Jan Christensen Nikolaj Jacobsen, þjálfari danska karlalandsliðsins í handbolta, er viss um að Mikkel Hansen verði með á HM í Egyptalandi þótt stórskyttan hafi lýst því yfir að hann sé enn að íhuga að spila ekki á mótinu.
Í samtali við Jyllands-Posten sagðist Hansen vera að íhuga hvort hann eigi að fara til Egyptalands vegna hugmynda mótshaldara um að leyfa áhorfendur á HM. Hann kveðst ekki hafa mikinn áhuga á að spila fyrir framan nokkur þúsund manns í miðjum heimsfaraldri kórónuveirunnar. Aðspurður um ummæli Hansens sagði Jacobsen að viðtalið sé frá því fyrir jól og hann sé fullviss um að Hansen fari með danska liðinu til Egyptalands. „Það er ekkert í þessu og fyrst hann er kominn til æfinga er hann klár í að fara á HM,“ sagði Jacobsen. „Eina í þessu er að Mikkel hefur hugsað málið eins og ég held að allir leikmenn hafi gert.“ Á blaðamannafundi í lok nóvember sagðist Ashraf Sobhy, íþróttamálaráðherra Egyptalands, vonast til að allt að fimm þúsund manns gætu sótt leiki á HM. Ekki eru allir sammála þessari draumsýn ráðherrans, þar á meðal Jacobsen. „Þetta er sennilega mesta áhyggjuefnið. Ég held að það ætti að vera leikið fyrir luktum dyrum. Það yrði öruggast fyrir alla,“ sagði Jacobsen. Danir eiga titil að verja á HM en þeir urðu heimsmeistarar á heimavelli og í Þýskalandi fyrir tveimur árum. Fyrsti leikur Danmerkur á HM er gegn strákunum hans Halldórs Sigfússonar í Barein 15. janúar.
HM 2021 í handbolta Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Sjá meira