Íslenskan mat í skóla Ingibjörg Ólöf Isaksen skrifar 25. janúar 2021 08:30 Börnin okkar eru þau dýrmætustu verðmæti sem við eigum og viljum við þeim allt hið besta. Það á við um menntun, uppeldi og vöxt þeirra og viðgang. Eitt af því sem við erum meðvituð um er að maturinn sem börnin okkar borða sé hollur og næringarríkur. Fræðsluráði Akureyrarbæjar barst erindi fyrir skömmu síðan þar sem dregnar voru þær ályktanir að ekki væri farið eftir tilmælum Landlæknis þegar kemur að viðmiðum varðandi mat í grunn og leikskólum Akureyrar. Í kjölfar þessa er nauðsynlegt að árétta nokkur atriði. Teknir voru upp sjö vikna matseðlar fyrir alla leik og grunnskóla bæjarins, matseðlarnir voru yfirfarnir af næringafræðingi sem reiknaði þá út, út frá næringarþörf barnanna og manneldismarkmiðum. Síðan hafa matseðlarnir verið yfirfarnir og uppskriftum bætt við. Eitt af meginmarkmiðum með sameiginlegum matseðlum er að tryggja að öllum skólabörnum standi til boða hollur og næringaríkur hádegisverður.Það var mikil bragabót þegar þessir matseðlar voru teknir upp en Akureyrarbær gerir þá kröfu að fylgt sé eftir markmiðum Embætti landlæknis. Vissulega má alltaf leitast við að gera enn betur og bókaði fræðsluráð á síðasta fundi sínum að komið yrði á reglubundnum úttektum á matseðlum og gæðum matarins í mötuneytum skólanna. Heilnæmur íslenskur matur Við Íslendingar erum þeirrar gæfu aðnjótandi að aðstæður okkar til matvælaframleiðslu eru að mörgu leiti einstakar, lítil notkun sýklalyfja, hreint vatn og hreint loft er eitthvað sem aðrar þjóðir öfunda okkur af og reglur um aðbúnað dýra eru með þeim ströngustu sem þekkjast. Grænmetið, kjötið og mjólkin eru hollustuvara sem við getum verið stolt af. Landbúnaður er öflugur í nærsveitum okkar og mikið af þeirri framleiðslu er síðan fullunnin hér í bænum. Leiðin úr haga í maga er því oft stutt. Akureyrarbær fer í útboð á matvælum og meðal annars var gerður samningur við Kjarnafæði eftir slíkt útboð. Kjarnfæði hefur unnið að því að draga mikið úr óæskilegum aukefnum í sinni framleiðslu. Vöruþróun síðustu ára hefur snúið mikið að því að fækka óþolsvöldum ásamt aukefnum og hefur fyrirtækið verið í fararbroddi þegar kemur að vottunum, bæði innlendum og erlendum. Minna salt og sykur er öllum til heilla hvort sem það er framleiðslufyrirtækjum eða neytendum. Frasinn „unnar matvörur“ hefur á síðustu árum verið notaður af sumum sem samheiti við óhollustu sem er mikil einföldun. Vinnsla á matvörum er oft nauðsynlegur og eðlilegur hluti af því að gera matvörur heppilegri til neyslu og auka matvælaöryggi. Dæmi um slíkt er t.d. gerilsneyðing á mjólk og framleiðsla á undanrennu og léttmjólk fyrir þá sem kjósa minni fitu. Vinnsla á matvælum er einnig oft til þess fallin að auka geymsluþol sem stuðlar að minni matarsóun. Unnar kjötvörur eru gríðarlega fjölbreyttur flokkur matvæla hafa farið í gegnum mismunandi framleiðsluferla og er stór hluti af daglegri neyslu fólks. Akureyrarbær setur strangar kröfur um heilnæmar unnar kjötvörur í útboð sitt og hefur Kjarnafæði unnið þétt með þeim stóru samstarfsaðilum að heilnæmari matseðli hverju sinni. Íslenskar hefðir Við Íslendingar höfum alist upp við alls kyns hefðir, m.a. gagnvart mat. Líkt og hjá öðrum þjóðum hafa matarhefðir okkar þróast með hliðsjón af þeim aðstæðum sem þjóðin bjó við í gegnum aldirnar og eru stór hlut af okkar menningararfleifð. Ég tel afar mikilvægt að við týnum ekki ríkum hefðum í okkar samfélagi eins og sprengidegi, hátíðarmat og þorramat svo dæmi séu tekin. En einmitt þessa dagana eru börnin okkar mörg hver að fá að bragða á þorramat og sum hver í fyrsta sinn. Skólar landsins eiga heiður skilinn fyrir að halda þessum hefðum á lofti og kynna börnin fyrir þessum matvælum sem tengjast þeim. Vinnsla matvæla er hluti af matvælaframleiðslu. Eins og umræðan hefur verið síðustu ár ekki bara í síðustu viku þá, er aukin áhersla á heilnæmi vara og er það vel, því það er mikilvægt að ný þekking um betri næringu og hollustu skili sér til neytenda allra tegunda matvæla. Höfundur er bæjarfulltrúi á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla - og menntamál Akureyri Ingibjörg Ólöf Isaksen Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar