Biden og Pútín ræddust við í síma: Ber ekki alveg saman um efnið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. janúar 2021 21:06 Þegar Donald Trump gengdi embætti forseta Bandaríkjanna var hann oft gagnrýndur fyrir linkind í garð Rússa en Biden hefur heitið því að taka harðari afstöðu. Joe Biden Bandaríkjaforseti hringdi í dag í Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Talsmönnum forsetanna ber ekki fullkomlega saman um hvaða mál voru til umræðu en Washington Post segir Biden hafa tjáð Pútín að Bandaríkin myndu verja sig gegn „óvinveittum aðgerðum“ af hálfu Rússlands.
Jen Psaki, fjölmiðlafulltrúi Biden, sagði að forsetinn hefði hringt í Pútín til að ræða framlengingu á sáttmála ríkjanna um fækkun kjarnorkuvopna, sem að óbreyttu rennur út 5. febrúar næstkomandi. Þá ræddu forsetarnir aðgerðir Rússa gagnvart Úkraínu, afskipti þeirra af nýafstöðnum forsetakosningum og meðferð Rússa á stjórnarandstæðingnum Alexei Navalny og öðrum friðsælum mótmælendum. Psaki sagði Biden einnig hafa rætt við Pútín um fregnir þess efnis að Rússar hefðu lagt fé til höfuðs bandarískum hermönnum í Afganistan. Í yfirlýsingu frá Kreml sagði hins vegar aðeins að leiðtogarnir hefðu rætt málefni líðandi stundar, svo sem samstarf í baráttunni gegn kórónuveirunni, viðskipti og efnahagsmál. Þá hefðu þeir rætt ákvörðun Donald Trump um að draga Bandaríkin úr svokölluðu Open Skies samkomulagi og framtíð kjarnorkuvopnasamkomulagsins við Íran.
Joe Biden Rússland Bandaríkin Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira