Buffon gæti fengið bann fyrir guðlast Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. janúar 2021 14:00 Gianluigi Buffon gæti fengið eins leiks bann fyrir guðlast. getty/Stefano Guidi Markvörðurinn þrautreyndi hjá Juventus, Gianluigi Buffon, gæti verið á leið í bann fyrir guðlast. Í leik Juventus og Parma 19. desember á Buffon að hafa sagt við samherja sinn, Manolo Portanova, orðin Porco Dio sem þóttu ekki viðeigandi. Ítalska knattspyrnusambandið hefur lokið rannsókn sinni á málinu og staðfesti í gær að það færi fyrir dómstóla. Ef Buffon verður fundinn sekur um guðlast verður hann væntanlega dæmdur í eins leiks bann. Nokkrir leikmenn í ítölsku úrvalsdeildinni hafa verið dæmdir í bann fyrir guðlast á undanförnum árum. Meðal þeirra er Bryan Cristante, leikmaður Roma, sem fékk eins leiks bann fyrir ummæli sem hann lét falla í leik gegn Bologna í desember. Buffon, sem verður 43 ára á morgun, hefur leikið sex leiki fyrir Juventus á þessu tímabili en hann er varamarkvörður fyrir Wojciech Szczesny. Buffon kom aftur til Juventus 2019 eftir eitt tímabil hjá Paris Saint-Germain. Hann lék áður með Juventus á árunum 2001-18 og er leikjahæstur í sögu ítölsku úrvalsdeildarinnar með 653 leiki.
Í leik Juventus og Parma 19. desember á Buffon að hafa sagt við samherja sinn, Manolo Portanova, orðin Porco Dio sem þóttu ekki viðeigandi. Ítalska knattspyrnusambandið hefur lokið rannsókn sinni á málinu og staðfesti í gær að það færi fyrir dómstóla. Ef Buffon verður fundinn sekur um guðlast verður hann væntanlega dæmdur í eins leiks bann. Nokkrir leikmenn í ítölsku úrvalsdeildinni hafa verið dæmdir í bann fyrir guðlast á undanförnum árum. Meðal þeirra er Bryan Cristante, leikmaður Roma, sem fékk eins leiks bann fyrir ummæli sem hann lét falla í leik gegn Bologna í desember. Buffon, sem verður 43 ára á morgun, hefur leikið sex leiki fyrir Juventus á þessu tímabili en hann er varamarkvörður fyrir Wojciech Szczesny. Buffon kom aftur til Juventus 2019 eftir eitt tímabil hjá Paris Saint-Germain. Hann lék áður með Juventus á árunum 2001-18 og er leikjahæstur í sögu ítölsku úrvalsdeildarinnar með 653 leiki. Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Ítalski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Fleiri fréttir Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu „Þetta lítur bara illa út“ Sjá meira