„Við erum ekki úr stáli“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. febrúar 2021 06:15 Eyðileggingin var mikil í desember þegar stóra aurskriðan féll eftir miklar rigningar dagana á undan. Vísir/Vilhelm „Náttúruhamfarirnar á Seyðisfirði í árslok 2020 eru þær verstu sem ég hef lent í á mínum ferli. Þarna voru ólýsanlegar, lífshættulegar aðstæður, þar sem maður óttaðist um eigið líf og annarra, bæði líf bæjarbúa og félaganna sem voru að sinna björgunarstörfunum.“
Þetta segir Haraldur Geir Eðvaldsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna á Austurlandi en hann hélt utan um skipulag björgunarstarfsins fyrir austan á dögunum. Hann segir það hafa verið ómetanlegt að fá stuðning fagaðila í kjölfar björgunarstarfsins sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna býður sínu fólki upp á. Haraldur Geir Eðvaldsson, slökkviliðsstjóri á Seyðisfirði.Vísir Íbúar Seyðifjarðar fóru ekki varhluta af áföllum í árslok 2020 þegar langvarandi úrkoma kom af stað aurflóðum sunnan megin í firðinum og þykk laus jarðlög flutu niður hlíðarnar á ógnar hraða í átt að bænum sem kúrir í botni fjarðarins. Aurflóðið olli gífurlegu eignatjóni. Haraldur segir mikla mildi að allir hafi komist lífs af en það megi ekki vanmeta eignatjónið sem bæði fjölskyldur og fyrirtæki urðu fyrir. Fjallshlíðin í bakgrunni þar sem stóra skriðan féll.Aðsend „Það misstu margir allt og stóðu bara uppi með það sem var í vösunum á fötunum þeirra. Innbúið okkar verður mjög mikilvægt þegar það er ekki lengur til. Þá eru það litlu persónulegu munirnir sem við söknum mest. Litli plattinn með fótsporum nýfæddra barna í fjölskyldunni, myndaalbúmið og annað sem ekki verður bætt með peningum,“ segir Haraldur. Haraldur segir að hans menn í Slökkviliðinu og aðrir sem unnu að björgunarstörfum á staðnum, menn frá lögreglu, Rauða krossinum og björgunarsveitum, hafi margir horft á stóru aurskriðuna æða niður hlíðina og á bæinn. Eyðileggingin í aurskriðunum á Seyðisfirði.Aðsend „Sú tilfinning var ömurleg og lengi vel vissi ég ekki hvort allir mínir menn hefðu sloppið. Félagar í hópnum horfðu upp á eignir sínar hverfa í drullu og við horfðum upp á fólk hlaupa út úr húsunum sínum. Allt í einu var ég kominn með dreng í fangið á flótta undan skriðunni. Við urðum öll að forða okkur út af svæðinu. Það var ekkert sem við gátum gert. Ég man eftir mér sitjandi á gangstéttarbrún með öðrum úr slökkviliðinu, hringjandi í fjölskyldur okkar til þess að láta þær vita að við væru á lífi. Bílar með blá ljós á leið frá Egilsstöðum gefa strax vísbendingu um að eitthvað mikið sé að gerast.“ Haraldur segir það hafa tekið nokkrun tíma að gera liðskönnun og fá fullvissu um að engra væri saknað. Hann lýsir því hvernig slökkviliðsmennirnir frá Seyðisfirði hafi fengið húsaskjól víða og því hafi tekið tíma að ná sambandi við þá alla í kjölfar atburðanna. Það hafi verið undarlega tilfinning að koma heim í öruggt skjól á Egilsstöðum og hann hafi sofnað með vonda samvisku vegna félaganna sem höfðu misst húsin sín og allt innbú. Jólahaldið í kjölfar alls þessa er sem hulið þoku. Rignt hafði allsvakalega dagana áður en stóra skriðan féll. „Þegar maður lendir í svona aðstæðum er eins og öll gömlu sárin á sálinni frá eldri björgunaraðgerðum opnist,“ segir Haraldur. Hann segir að Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafi tekið upp þá nýjung að bjóða upp á áfallahjálp faglærðra sérfræðinga og sé hún ómetanleg. „Það er eins og öll gömlu atvikin brjótist fram eftir áfallið sem við urðum fyrir á Seyðisfirði í árlok. Auðvitað höfum við alltaf talað saman og reynt að styðja hver annan eftir að hafa staðið í ströngu, en það þarf meira til. Við erum ekki úr stáli og þurfum faglega hjálp sem fyrst eftir lífsháska og björgunaraðgerðir af þeirri stærðargráðu sem við lentum í,“ segir slökkviðliðsstjórinn.
Slökkvilið Múlaþing Aurskriður á Seyðisfirði Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira