Harður árekstur og skemmdarverk í ráðhúsinu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. febrúar 2021 07:57 Nokkuð annríki var hjá lögreglu í nótt og hafði hún meðal annars afskipti af tveimur sem grunaðir eru um vörslu fíkniefna. Vísir/Vilhelm Lögregla var kölluð á vettvang um kl. 21 í gærkvöldi eftir að bifreið var ekið á vegrið á Bústaðavegi með þeim afleiðingum að hún kastaðist yfir á rangan vegarhelming og framan á aðra bifreið.
Samkvæmt dagbók lögreglu ók tjónvaldur burt af vettvangi en var handtekinn skömmu síðar á heimili sínu. Er hann grunaður um ölvun við akstur og var að lokinni sýnatöku vistaður í fangageymslu lögreglu. Tjónþoli hugðist sjálfur leita á slysadeild vegna eymsla. Bifreið hans er mikið tjónuð og var dregin af vettvangi. Lögregla var einnig kölluð til vegna manns í annarlegu ástandi sem búinn var að brjóta brunaboða í ráðhúsinu. Hann reyndist einnig hafa tæmt úr slökkvitækjum í bílageymslu. Maðurinn var meiddur á hendi og fluttur á slysadeild. Um kl. 22.30 var tilkynnt um útitónleika í hverfi 101 þar sem hópur fólks var saman kominn. Tónleikahaldari verður kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt og brot á sóttvarnalögum en hann hafði ekki heimild fyrir tónleikahaldinu og þá hefur lögregla áður sinnt samskonar tilkynningum, samkvæmt dagbók. Kl. 17 og 20 var lögregla kölluð til vegna innbrota og þjófnaðar í tvö fjölbýlishús í hverfi 220. Í fyrra tilvikinu var brotist inn í sjö geymslur og því síðara í fjórar geymslur. Hurðir voru spenntar upp og brotnar. Í seinna tilvikinu var meðal annars stolið rafskútu og vefmyndavél.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira