Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. október 2026 13:47 Alexandra bæjarstjóri ásamt oddvitunum Framsóknar, Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar og óháðra og Miðflokksins þegar framtíðarsýn í Suðurnesjabæ var samþykkt á dögunum. Suðurnesjabær Trúnaðarbresturinn sem Samfylkingin og óháðir töldu svo alvarlegan að slíta þyrfti meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í Suðurnesjabæ snýr samkvæmt heimildum fréttastofu að tilraun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins til að mynda nýjan meirihluta með Framsóknarflokknum og Miðflokki. Tilraunin var þó ekki gerð af oddvita flokksins heldur þeim sem situr í öðru sæti.
Meirihluti Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins sem myndaður var eftir kosningarnar í maí sprakk í gær eftir fjögurra mánaða samstarf. Alls eru níu fulltrúar í bæjarstjórn. Í lok maí náðu þrír fulltrúar Samfylkingarinnar og tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks saman um myndun meirihluta í bæjarfélaginu og í ágúst réðu flokkarnir Alexöndru Jóhannesdóttur sem ópólitískan bæjarstjóra. Samkvæmt heimildum Vísis barst Samfylkingarfólki til eyrna að Haraldur Helgason, bæjarfulltrúi og annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurnesjabæ, hefði gert tilraun til að mynda meirihluta með Miðflokknum og Framsóknarflokknum. Um hefði verið að ræða ríkari meirihluta en sá sem fyrir var eða með sex fulltrúum á móti þá þremur bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar í minnihlutanum. S-listi Samfylkingar og óháðra og D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra mynduðu meirihluta í Suðurnesjabæ í lok maí. Í framhaldinu hófst leit að bæjarstjóra. Samkvæmt heimildum Vísis er Samfylkingarfólk óvisst um að Haukur Andreasson, forseti bæjarstjórnar og efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins, hafi verið meðvitaður um plön Haraldar. Það flækir málin að um er að ræða tvo fulltrúa sama flokks í átta ára gömlu sameinuðu sveitarfélagi þar sem Haukur er búsettur í Sandgerði en Haraldur er fulltrúi flokksins í Garði. Í sameinuðu sveitarfélagi koma reglulega upp álitamál hvort verkefni í Garði eða Sandgerði séu meira aðkallandi. Hagsmunir bæjarfulltrúa sama flokks geta því verið ólík. Raunar var það ein af helstu áherslum nýs meirihluta Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins í nýjum meirihluta að gæta eftir fremsta megni jafnræðis á milli bæjanna tveggja í sveitarfélaginu enda allir meðvitaðir um þá flækju sem getur skapast um forgangsröð þegar bæirnir eru tveir. Í tilkynningu á heimasíðu bæjarins þann 9. september var sérstaklega tilkynnt um „metnaðarfulla framtíðarsýn“ sem fulltrúar beggja flokka meirihlutans og bæjarstjóri skrifuðu undir. Bæjarfulltrúarnir níu sem kjörnir voru í kosningunum í maí. Samfylkingin og óháðir eru með flesta fulltrúa og geta samið við hvern hinna flokkanna um samstarf. „Undanfarnar vikur hafa bæjarfulltrúar unnið markvisst að því að ná sameiginlegri niðurstöðu um þessi mikilvægu verkefni. Sú vinna hefur skilað samkomulagi um megináherslur sem allar fylkingar í bæjarstjórn standa að,“ sagði á heimasíðu bæjarins. Innan við mánuði síðar er meirihlutinn sprunginn. Í framtíðarsýninni var tæpt á ýmsum málum en meðal þeirra var staðninga bæjarskrifstofu og lagning gervigrasvallar á aðalvelli Reynis í Sandgerði. Knattspyrnuaðstaða fyrir börn í Garði yrði bætt. Um er að ræða tvö álitamál sem brunnið hafa á íbúum sveitarfélagsins. Samkvæmt heimildum Vísis var þetta eitt af þeim atriðum sem Sjálfstæðismönnum í Garði leist illa á. Það væri ofar á blaði hjá þeim að fara í uppbyggingu á slíku svæði á um fimm kílómetra svæði á milli bæjanna tveggja sem íbúar í báðum bæjum sveitarfélagsins hefðu jafnan aðgang að. Við þetta má bæta að Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti óvænt fyrir tíu dögum að hún hygðist hætta sem varabæjarfulltrúi um mánaðamótin. Vísaði hún til persónulegra ástæðna en samkvæmt heimildum Vísis snýr málið að vantrausti til bæjarfulltrúa flokksins. Haukur Andreasson, forseti bæjarstjórnar, tjáði Vísi að von væri á tilkynningu frá flokknum vegna málsins eftir hádegi í dag. Þá var Haraldur mjög upptekinn en til í að ræða málin frekar þegar liði á daginn.
Suðurnesjabær Sveitarstjórnarmál Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fleiri fréttir Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Sjá meira