Suðurnesjabær
1 2 3 4 5 6 … 13 ›
Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Íbúar Suðurnesjabæjar ráða sér ekki yfir kæti þessa dagana því það var verið að opna nýja og glæsilega heilsugæslustöð í Sandgerði en þar munu heilbrigðisstarfsmenn frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinna skjólstæðingum nýju stöðvarinnar. Innlent 17.6.2025 21:03
Svo verði Íslands ástkæra byggð ei öðrum þjóðum háð 81 ár er liðið síðan Ísland varð sjálfstæð þjóð og lýðveldið Ísland stofnað við Lögberg á Þingvöllum, við Öxará. Það er ekki langur tími, aðeins einn mannsaldur. Enn eru meðal okkar þeir sem muna daginn, muna hátíðina. Skoðun 17.6.2025 10:32
Heilbrigðisþjónusta í heimabyggð – loksins orðin að veruleika 4.júní 2025 markaði stór tímamót fyrir okkur í Suðurnesjabæ, því þá opnaði ný heilsugæsla í Vörðunni í Suðurnesjabæ. Þetta er árangur sem margir hafa beðið eftir lengi og sannar að samvinna, staðfesta og skýr forgangsröðun skilar raunverulegum árangri fyrir samfélagið okkar. Skoðun 5.6.2025 10:15
Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri svaraði gagnrýni Úlfars Lúðvíkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, í tölvupósti til starfsmanna embættisins á þriðjudag. Þar sagði hún Úlfar ekki hafa sinnt sameiginlegu verkefni lögreglunnar og tollsins um farþegaeftirlit og því hafi samstarfinu verið rift. Innlent 31.5.2025 15:02
Fyrsta mastrið í Suðurnesjalínu 2 risið Fyrsta mastur Suðurnesjalínu 2 reis við Kúagerði í morgun. Alls munu 86 mastur rísa vegna lagningar línunnar og markaði framkvæmdin í morgun því tímamót í verkefninu. Innlent 21.5.2025 14:21
Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi Síðan á miðnætti hafa verið fimm útköll á sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Í tilkynningu segir að það sé óvenju mikið miðað við árstíma. Fyrsta útkallið var frá fólki sem var á siglingu á miðjum Seyðisfirði og hin fjögur vegna strandveiðibáta í vandræðum. Innlent 19.5.2025 12:48
Brýn þörf á auknum fjárveitingum vegna sjávarflóða Sjávarflóð eru náttúruvá sem Íslendingar þurfa að búa við og mikilvægt er að bregðast við á viðeigandi hátt. Líkt og í baráttunni við ofanflóð, þar sem sterk og markviss varnarvinna hefur skilað góðum árangri, er nauðsynlegt að setja upp öflugar sjóvarnir til að lágmarka skaða af völdum sjávarflóða. Skoðun 19.5.2025 09:02
Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, heldur fullum launum út skipunartíma sinn og í sex mánuði til viðbótar. Hann verður því á launum til og með 15. maí á næsta ári. Innlent 16.5.2025 14:51
Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Úlfari Lúðvíkssyni var boðið starf lögreglustjórans á Austurlandi á fundi með ráðherra án þess að þurfa að sækja starfið gegn því að hann myndi láta af störfum sem lögreglustjóri á Suðurnesjum. Úlfar afþakkaði það á fundi og lét svo af störfum sem lögreglustjóri. Frá þessu er greint á vef mbl.is og er vísað í fundargerð af fundi ráðherra og lögreglustjórans. Innlent 15.5.2025 12:59
Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Stjórnsýslufræðingur telur líkur á að afsögn Úlfars Lúðvíkssonar fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum tengist útlendingapólitík. Hann segir framvinduna undanfarna daga óvenjulega. Innlent 14.5.2025 19:58
Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Prófessor í stjórnmálafræði við HA segir skiljanlegt að lögreglustjórinn á Suðurnesjum líti svo á að hann hafi verið rekinn í ljósi viðtekinnar venju. Lögreglustjórinn lét sjálfur af embætti á miðnætti eftir að dómsmálaráðherra sagði honum að staða lögreglustjórans yrði auglýst í haust og að samningur hans yrði ekki endurnýjaður. Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð tímabundið í embættið. Innlent 14.5.2025 13:32
„Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð tímabundið í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eftir að Úlfar Lúðvíksson baðst lausnar. Hún segir embættið víðamikið og áskoranirnar margar en er jafnframt þakklát fyrir traustið. Innlent 13.5.2025 20:35
Víðir og Reynir ekki í eina sæng Ekkert verður af sameiningu íþróttafélaganna Víðis í Garði og Reynis í Sandgerði. Íslenski boltinn 13.5.2025 15:31
Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina „Það eru miklar breytingar framundan á skipulagi og stærð verkefna embættisins. Því fannst mér einfaldlega heiðarlegt og heilbrigt að auglýsa embætti lögreglustjórans og tilkynnti honum það í samræmi við lög og reglur að það stæði til.“ Innlent 13.5.2025 14:11
Úlfar hættir sem lögreglustjóri Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, mun láta af embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum á miðnætti. Hann segir að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hafi tjáð sér að staða lögreglustjórans á Suðurnesjum yrði auglýst í haust og að samningur hans yrði ekki endurnýjaður. Innlent 13.5.2025 13:20
Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Undanfarnar vikur hafa íbúar Suðurnesjabæjar verið dregnir inn í mál sem hefur reynst bæði flókið og misvísandi. Boðað hefur verið til kosningar meðal félagsmanna íþróttafélaganna Reynis og Víðis um stofnun nýs íþróttafélags. En er kosningin í raun aðeins um nýtt íþróttafélag, eða eru önnur og stærri mál falin bak við tjöldin? Hér verður reynt að upplýsa málið af fullri hreinskilni og ábyrgð. Skoðun 9.5.2025 23:00
Röðin í öryggisleitina nær langt inn í brottfararsal Örtröð ríkir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem ein stærsta ferðahelgi ársins er að ganga í garð. Röðin í öryggisleitina náði langt inn í brottfararsalinn á jarðhæð flugstöðvarinnar um klukkan 09:30 í morgun. Isavia biðlar til fólks að mæta snemma á völlinn. Innlent 16.4.2025 10:29
Ósáttur við aukna gjaldtöku við flugvöllinn fyrir leigubílstjóra Isavia stefnir að því að hækka gjaldtöku fyrir leigubílstjóra sem stöðva við flugstöðina til að sækja farþega. Hækka á gjaldið til að geta ráðið starfsmenn til að sinna gæslu við leigubílastöðina og aðstoða farþega við að finna sér leigubíl. Öryggisgæsla við leigubílasvæðið hefst 1. maí á háannatíma en hærri gjaldtaka síðar. Neytendur 16.4.2025 07:53
Átján ára með 13 kíló af kókaíni Piltur á nítjánda aldursári er í gæsluvarðhaldi fyrir innflutning á þrettán kílóum af kókaíni. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir sérstakt að leggja hald á flugfreyjutösku fulla af fíkniefnum, sem ferðast var með í handfarangri. Áætlað götuvirði er um 220 milljónir króna. Innlent 14.4.2025 19:05
Verður Frelsið fullveldinu að bráð? Viðreisn hefur ítrekað talað fyrir frelsi og lýst sig sem flokkur sem berst fyrir opnu, frjálsu þjóðfélagi. Flokkurinn hefur þó jafnframt sett Evrópusambandsaðild á oddinn í sínum málflutningi og telur hana nauðsynlega fyrir framtíð Íslands. En hver er raunveruleg merking frelsis í þeirra huga? Getur Ísland verið frjálst og fullvalda innan Evrópusambandsins, eða felst í þeirri stefnu ákveðin mótsögn? Skoðun 14.3.2025 12:02
Bæjarfulltrúum í Suðurnesjabæ fækkað um tvo Meirihluti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar samþykkti að fækka bæjarfulltrúum um tvo á næsta kjörtímabili. Þrír bæjarfulltrúar greiddu atkvæði gegn breytingunni. Innlent 12.3.2025 12:14
Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Almyrkvi á sólu, sem verður á jörðinni þann 12. ágúst á næsta ári, mun vara lengst á Látrabjargi. Þetta er ástæða þess að hótelrými á sunnanverðum Vestfjörðum er fyrir löngu uppselt í kringum þennan dag og þar er búist við umferðaröngþveiti. Innlent 11.3.2025 23:17
Hundur í hjólastól í Sandgerði Hundurinn Arlo í Suðurnesjabæ lætur ekkert stoppa sig þrátt fyrir að hafa fæðst með engar framlappir. Arlo notar hjólastól til að komast leiða sinnar eða hleypur um á afturlöppunum á heimili sínu. „Lífsglaðasti hvolpur, sem ég hef vitað um“, segir eigandinn. Lífið 9.3.2025 20:06
Flugstarfsemin skapi tvö til fjögur hundruð ný störf á ári næsta áratuginn Leifsstöð er orðin ígildi stóriðju. Spáð er að flugstarfsemin á Keflavíkurflugvelli muni skapa milli tvö og fjögur hundruð ný störf á hverju ári næsta áratuginn. Innlent 8.3.2025 23:01
„Þetta eru auðvitað náttúruhamfarir“ Stór svæði eru á floti í Suðurnesjabæ eftir veðrið sem hefur gengið þar yfir síðustu daga. Bæjarstjórinn segist lengi hafa kallað eftir bættum sjóflóðavörnum á svæðinu. Bryggjunni í Vogum hefur verið lokað vegna skemmda. Innlent 4.3.2025 21:22
Með fimmtán kíló af grasi í töskunni Karlmaður hefur verið dæmdur til fjórtán mánaða fangelsisvistar, sem er að mestu skilorðsbundin. Hann var gripinn í tollinum með fimmtán kíló af maríhúana falin í farangurstösku sinni. Innlent 4.3.2025 12:06
Slegin óhug vegna eyðileggingarmáttar náttúruaflanna Alger eyðilegging blasir við fyrirtækjaeigendum við Fiskislóð 31 í Reykjavík eftir óveðrið um liðna helgi. Himinháar öldur skullu á varnargarðinum úti á Granda með þeim afleiðingum að upp úr brotnaði og flóð náði langt upp á land. Kona sem hefur búið að Fiskislóð í ellefu ár segist aldrei hafa orðið vitni að jafn kraftmiklum öldum. Innlent 3.3.2025 20:11
Þak flettist af húsi í Sandgerði Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði var kölluð út á öðrum tímanum í nótt vegna þaks sem var að fjúka af húsi í bænum. Innlent 3.3.2025 06:28
Bátur kastaðist upp á bryggju í hamfaraveðri í Sandgerði Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út vegna báta sem ýmist losnuðu eða voru við það að losna í Sandgerðishöfn á áttunda tímanum í kvöld. Innlent 3.3.2025 00:03
Ný þrjátíu milljarða króna álma bætist við Leifsstöð Flugstöðin á Keflavíkurflugvelli stækkar um þrjátíu prósent með nýrri álmu sem opnuð var að stórum hluta í dag. Viðbyggingin með nýjum landgöngubrúm og flugvélastæðum kostar hartnær þrjátíu milljarða króna. Innlent 26.2.2025 22:12