Erlent

Þurftu að koma vél Land­helgis­gæslunnar í skjól þegar eld­fjall fór að gjósa

Eiður Þór Árnason skrifar
Tilkomumikil mynd náðist af TF-SIF á flugvellinum í Catania með Etnu í bakgrunni.
Tilkomumikil mynd náðist af TF-SIF á flugvellinum í Catania með Etnu í bakgrunni. Landhelgisgæslan

Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, þurfti að hafa hraðann á síðdegis í dag þegar eldfjallið Etna byrjaði skyndilega að gjósa. 

Áhöfn flugvélarinnar sinnir nú landamæraeftirliti á Miðjarðarhafi á vegum Frontex, landamærastofnunar Evrópu og var nýlent á Sikiley í lok eftirlitsflugs þegar Etna fór að minna á sig. Töluvert öskufall fylgdi gosinu og því þótti brýnt að koma vélinni fyrir í flugskýli á flugvellinum í borginni Catania. 

Landhelgisgæslan greinir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni en Etna er með virkustu eldfjöllum jarðar og eru eldsumbrot í fjallinu nánast stöðug. Fjallið nær í 3.326 metra hæð yfir sjávarmáli en sú hæð á til að breytast í kringum gos. Er sömuleiðis um að ræða hæsta virka eldfjall Evrópu utan Kákasusfjallanna og hæsta fjall Ítalíu sunnan Alpafjalla. 

Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar hafði hraðann á og kom vélinni í skjól í flugskýli á Sikiley...

Posted by Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard on Tuesday, February 16, 2021



Fleiri fréttir

Sjá meira


×