Eyjamenn hafa ekki tapað leik í Mosfellsbænum í 2336 daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2021 13:31 Kári Kristjánsson skorar fyrir ÍBV á móti Aftureldingu í Mosfellsbænum. Vísir/Daníel Þór ÍBV liðið heimsækir Aftureldingu í Olís deild karla í handbolta í kvöld en Eyjamenn hafa geta treyst á það að undanfarin ár að ná í stig að Varmá. Eyjamenn hafa nú leikið sjö deildarleiki í röð í Mosfellsbænum án þess að tapa og hafa ennfremur unnið fimm af þessum taplausu leikjum sínum. Í síðustu sjö heimaleikjum Aftureldingar á móti ÍBV í Olís deildinni þá hafa Mosfellingar aðeins haft tvö stig upp úr karpinu á móti tólf stigum sem hafa farið í burtu með Eyjamönnum. Eyjamenn hafa ekki tapað deildarleik í Mosfellsbænum síðan að þeir töpuðu þar 27. september 2014. Síðan eru liðnir 2336 dagar eða með öðrum orðum sex ár, fjórir mánuðir og 22 dagar. Síðasti þjálfari Eyjaliðsins til að tapa í Mosfellsbænum var Gunnar Magnússon en hann er einmitt þjálfari Aftureldingarliðsins í dag. Afturelding vann leikinn 24-22 þar sem Eyjamenn fengu tækifæri til að jafna metin í 23-23 fimm mínútum fyrir leikslok. Það tókst ekki og Gunnar Malmquist innsiglaði sigurinn á vítalínunni. Gunnar Malmquist er enn leikmaður Aftureldingar í dag og einn fárra leikmanna liðsins sem þekkir það að vinna lið ÍBV. Eyjamenn unnu reyndar leik i úrslitakeppninni á sama tímabil en sá leikur fór fram 8. apríl 2015. En frá og með haustinu 2015 hefur Mosfellingum ekki tekist að vinna ÍBV liðið á Íslandsmóti, hvorki í deild né úrslitakeppni. Leikur Aftureldingar og ÍBV í kvöld er fyrsti leikurinn í tíundu umferð og hefst klukkan 18.00. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin klukkan 17.50. Síðustu deildarleikir Aftureldingar og ÍBV að Varmá: 2019-20 ÍBV vann 6 marka sigur (32-26) - 9. febrúar 2020 2018-19 Jafntefli (28-28) - 17. október 2018 2017-18 ÍBV vann 4 marka sigur (27-23) - 14. september 2017 2016-17 ÍBV vann 7 marka sigur (31-24)- 5. mars 2017 ÍBV vann 5 marka sigur (34-29)- 2. febrúar 2017 2015-16 Jafntefli (28-28) - 31. mars 2016 ÍBV vann 2 marka sigur (23-21) - 3. október 2015 2014-15 Afturelding vann 2 marka sigur (24-22) - 27. september 2014 Olís-deild karla Afturelding ÍBV Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira
Eyjamenn hafa nú leikið sjö deildarleiki í röð í Mosfellsbænum án þess að tapa og hafa ennfremur unnið fimm af þessum taplausu leikjum sínum. Í síðustu sjö heimaleikjum Aftureldingar á móti ÍBV í Olís deildinni þá hafa Mosfellingar aðeins haft tvö stig upp úr karpinu á móti tólf stigum sem hafa farið í burtu með Eyjamönnum. Eyjamenn hafa ekki tapað deildarleik í Mosfellsbænum síðan að þeir töpuðu þar 27. september 2014. Síðan eru liðnir 2336 dagar eða með öðrum orðum sex ár, fjórir mánuðir og 22 dagar. Síðasti þjálfari Eyjaliðsins til að tapa í Mosfellsbænum var Gunnar Magnússon en hann er einmitt þjálfari Aftureldingarliðsins í dag. Afturelding vann leikinn 24-22 þar sem Eyjamenn fengu tækifæri til að jafna metin í 23-23 fimm mínútum fyrir leikslok. Það tókst ekki og Gunnar Malmquist innsiglaði sigurinn á vítalínunni. Gunnar Malmquist er enn leikmaður Aftureldingar í dag og einn fárra leikmanna liðsins sem þekkir það að vinna lið ÍBV. Eyjamenn unnu reyndar leik i úrslitakeppninni á sama tímabil en sá leikur fór fram 8. apríl 2015. En frá og með haustinu 2015 hefur Mosfellingum ekki tekist að vinna ÍBV liðið á Íslandsmóti, hvorki í deild né úrslitakeppni. Leikur Aftureldingar og ÍBV í kvöld er fyrsti leikurinn í tíundu umferð og hefst klukkan 18.00. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin klukkan 17.50. Síðustu deildarleikir Aftureldingar og ÍBV að Varmá: 2019-20 ÍBV vann 6 marka sigur (32-26) - 9. febrúar 2020 2018-19 Jafntefli (28-28) - 17. október 2018 2017-18 ÍBV vann 4 marka sigur (27-23) - 14. september 2017 2016-17 ÍBV vann 7 marka sigur (31-24)- 5. mars 2017 ÍBV vann 5 marka sigur (34-29)- 2. febrúar 2017 2015-16 Jafntefli (28-28) - 31. mars 2016 ÍBV vann 2 marka sigur (23-21) - 3. október 2015 2014-15 Afturelding vann 2 marka sigur (24-22) - 27. september 2014
Síðustu deildarleikir Aftureldingar og ÍBV að Varmá: 2019-20 ÍBV vann 6 marka sigur (32-26) - 9. febrúar 2020 2018-19 Jafntefli (28-28) - 17. október 2018 2017-18 ÍBV vann 4 marka sigur (27-23) - 14. september 2017 2016-17 ÍBV vann 7 marka sigur (31-24)- 5. mars 2017 ÍBV vann 5 marka sigur (34-29)- 2. febrúar 2017 2015-16 Jafntefli (28-28) - 31. mars 2016 ÍBV vann 2 marka sigur (23-21) - 3. október 2015 2014-15 Afturelding vann 2 marka sigur (24-22) - 27. september 2014
Olís-deild karla Afturelding ÍBV Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira