Breiðablik afgreiddi KR í síðari hálfleik og Skallagrímur hafði betur í grannaslagnum Anton Ingi Leifsson skrifar 24. febrúar 2021 20:58 Breiðablik vann góðan sigur á KR í kvöld. vísir/vilhelm Breiðablik vann öruggan sigur á botnliði KR og Skallagrímur hafði betur gegn grönnum sínum í Snæfæll í Domino's deild kvenna í kvöld.
Breiðablik skellti KR, 74-49, en það voru hins vegar gestirnir úr Vesturbænum sem voru sterkari aðilinn framan af leik og leiddu meðal annars 32-23 í hálfleik. Blikarnir settu hins vegar í fluggírinn í síðari hálfleik; unnu þriðja leikhlutann 27-10, fjórða leikhlutann 24-7 og leikinn samtals 74-49. Sóllilja Bjarnadóttir var frábær í Blikaliðinu. Hún gerði 28 stig, tók níu fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Isabella Ósk Sigurðardóttir gerði þrettán stig, tók þrettán fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Annika Holopainen var stigahæst í liði KR sem fyrr. Hún gerði tuttugu stig, tók þrettán fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Perla Jóhannsdóttir kom næst með átta stig en Breiðablik er í sjötta sætinu með sex stig á meðan KR er í því neðsta með tvö. Skallagrímur vann svo eins stigs sigur á grönnum sínum í Snæfell, 66-65, eftir jafnan og spennandi leik í Stykkishólmi. Staðan var 32-31, Skallagrími í vil í hálfleik, en leikurinn var afar jafn og spennandi. Keira Breeanne Robinson var stigahæst hjá Skallagrím með 24 stig og fjórtán fráköst. Nikita Telesford bætti við tíu stigum og fjórtán fráköstum. Haiden Denise Palmer gerði 22 stig fyrir Snæfell og tók fimmtán fráköst og Emese Vida gerði þrettán stig og tók 21 frákast. Skallagrímur er eftir sigurinn í fimmta sæti deildarinnar með tíu stig en Snæfell er í næst neðsta sætinu með fjögur stig.
Breiðablik KR Dominos-deild kvenna Snæfell Skallagrímur Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Sara Björk komin heim Sport Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fleiri fréttir Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira