Varamennirnir komu Juventus á bragðið Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. mars 2021 21:40 Það tók Morata slétta mínútu að koma Juventus yfir eftir að hann kom inn af bekknum í kvöld. EPA-EFE/ALESSANDRO DI MARCO Gestirnir héldu meisturunum í skefjum í rúma klukkustund í kvöld. Eftir markalausan fyrri hálfleik brást Andrea Pirlo – þjálfari Juventus – við með því að senda þá Federico Bernardeschi og Álvaro Morata inn af bekknum. Út af komu bakvörðurinn Gianluca Frabotta og miðjumaðurinn Weston McKennie. Var þetta eflaust ein besta ákvörðun sem Pirlo hefur tekið sem þjálfari. Aðeins mínútu síðar hafði Morata komið knettinum í netið af stuttu færi, eftir sendingu frá Bernardeschi. 60 - Álvaro Morata has found the net just 60 seconds after coming from the bench in #JuveSpezia: it is the fastest goal scored by a substitute player for Juventus in Serie A this season. Impetuous.— OptaPaolo (@OptaPaolo) March 2, 2021 Federico Chiesa kom meisturunum svo í 2-0 á 71. mínútu og að sjálfsögðu varð Cristiano Ronaldo að vera með. Portúgalinn skoraði þriðja mark heimamanna á 89. mínútu leiksins og sigurinn því á endanum einkar öruggur. Lokatölur 3-0 og Juventus nú í 3. sæti deildarinnar með 49 stig, sjö stigum minna en topplið Inter Milan. Ítalski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti