Innlent

Loka svæðinu næst gossprungunni

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Lokaða svæðið er rauðmerkt á myndinni.
Lokaða svæðið er rauðmerkt á myndinni. ALMANNAVARNIR

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að loka litlu svæði næst gossprungunni í Geldingadölum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum sem birt var á Facebook. Þar kemur fram að ákvörðunin sé byggð á ályktun vísindaráðs þar sem vakin var athygli á því að stóri gígurinn geti brostið og hrauntaumurinn breytt hratt um stefnu.

„Þá er einnig hætta á að önnur gossprunga opnist í grennd við gíginn, en það gerðist í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi 2010. Lokaða svæðið er rauðmerkt á meðfylgjandi mynd.“ segir í tilkynningunni.

Lokaða svæðið er rauðmerkt á myndinni.ALMANNAVARNIR

Ennfremur er athygli vakin á öðrum hættum sem kunnu að skapast í kringum gosstöðvarnar:

  • Nýjar sprungur geta opnast í næsta nágrenni eldstöðvanna með engum fyrirvara.
  • Glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðrinum og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram úr hraunjaðrinum með miklum hraða sem erfitt að forðast á hlaupum.
  • Gígarnir eru nú orðnir margra metra háir og geta verið óstöðugir, þeir geta brotnað og mikill og skyndilegur hraunstraumur úr þeim tekið nýja stefnu.
  • Sprengingar geta orðið þar sem hraun rennur yfir vatnsmettaðan jarðveg og þeytt hrauni til allra átta.
  • Hraunið rennur í lokaða dæld og geta lífshættulegar gastegundir safnast saman í dældum sem getur verið banvænt. Hættan eykst þegar vindur minnkar.

Þá spáir Veðurstofan vondu veðri næsta sólarhringinn og er ferðafólki bent á að vera mjög vel búið ef það ætlar sé að ganga upp að gosstöðvum. Búist er við að veðrið versni talsvert í nótt.

Margir lögðu leið sína að svæðinu í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×