Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Eitt ár er í dag liðið frá því síðast gaus í grennd við Grindavík. Þann 16. júlí í fyrra hófst níunda eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni og lauk því fimmta ágúst, eða um þremur vikum síðar. Innlent 16.7.2026 08:21
Svartir svanir á Reykjanesi Að kvöldi 10. nóvember 2023 var Grindavík rýmd. Á fáeinum klukkustundum yfirgáfu um 3.700 manns heimili sín. Bærinn sem þau skildu eftir var annar en sá sem þau höfðu vaknað í um morguninn; sprungur lágu í gegnum götur og garða, landið hafði sigið og undir byggðinni lá kvikugangur. Skoðun 15.7.2026 11:31
„Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin verði að koma til móts við Grindvíkinga sem eru margir ósáttir við nýja hollvinasamninga sem fasteignafélagið Þórkatla kynnti á dögunum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna félagið vilji takmarka dvöl Grindvíkinga í bænum við tólf nætur í senn. Innlent 12.6.2026 15:56
„Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu Framkvæmdastjóri Þórkötlu segir hollvinasamninga Grindvíkinga við félagið aldrei verið hugsað til fastrar búsetu og að það hafi ávallt komið skýrt fram. Breyting á ákvæðum samninga sé tilraun til að gera það skýrara. Innlent 4. júní 2026 12:38
Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Fasteignafélagið Þórkatla vinnur nú að uppfærslu hollvinasamninga og gistiviðauka þeirra sem gerir ráð fyrir að frá og með 1. september geti hollvinir ekki gist fleiri en tólf nætur á mánuði í eignunum. Bæjarfulltrúi er ósáttur en bæjarstjórn fundar með stjórn Þórkötlu á morgun. Innlent 2. júní 2026 21:29
Skjálftahrinan mallar enn Skjálftahrinan við Hellisheiði heldur áfram en auk þess hefur virkni mælst í dag við Kleifarvatn á Reykjanesskaga og á Reykjaneshrygg. Náttúruvársérfræðingur segir virknina vera eðlilega. Innlent 2. júní 2026 16:37
Skjálftahrina úti af Reykjanesi Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi og hefur stærsti skjálftinn mælst 3,5 að stærð. Ekki mælist órói á svæðinu, að sögn Veðurstofu. Innlent 24. maí 2026 07:55
Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Það sem er að gerast hjá Golfklúbbi Grindavíkur jaðrar við að mega heita kraftaverk. Fyrir tveimur árum, í kjölfar eldanna á Reykjanesi, sendu forráðamenn klúbbsins út hálfgert neyðarkall og voru komnir á fremsta hlunn með að hætta starfseminni. Bærinn var tómur en golfvöllurinn stóð keikur. Innlent 22. maí 2026 13:53
Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Skarphéðinn Berg Steinarsson hefur verið ráðinn til tveggja ára sem verkefnisstjóri forsætisráðuneytisins í málefnum Grindavíkur. Skarphéðinn hefur setið í Grindavíkurnefnd frá vorinu 2025. Hann mun stýra samhæfingu af hálfu ríkisins varðandi Reykjaneselda og uppbyggingu Grindavíkurbæjar. Verkefnisstjóri í málefnum Grindavíkur mun eiga náið samstarf við Grindavíkurbæ, lögreglu og almannavarnir, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 21. maí 2026 15:54
Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir allt stefna í nýtt eldgos á Sundhnúksgígaröðinni. Margir aðrir möguleikar séu þó í stöðunni, eins og að annað eldstöðvakerfi taki við, þar á meðal Krýsuvíkurkerfið. Innlent 18. maí 2026 22:10
Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Verkfræðistofan COWI hefur skilað minnisblaði um fýsileika þess að leita að og endurheimta jarðneskar leifar Lúðvíks Péturssonar, sem er talinn hafa látist þegar hann féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar árið 2024. Innlent 13. maí 2026 06:45
Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðið sem áformað hefur verið undir flugvöll í Hvassahrauni flokkast í nýrri skýrslu Veðurstofunnar undir mesta áhættusvæði hraunflæðis á Reykjanesskaga. Jafnframt fellur það innan svæða með líkur á gosopnun. Innlent 30. apríl 2026 11:13
Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni er áfram líklegasta sviðsmyndin á Reykjanesskaganum að mati Veðurstofu Íslands. Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni á landinu. Innlent 28. apríl 2026 15:37
„Við verðum að fá fólk heim aftur“ Grindvískt fjölskyldufyrirtæki vinnur nú að því að fylla upp í allt að 15 metra djúpa sprungu við íþróttahúsið í Grindavík. Framkvæmdastjórinn segir verkið snúast um að gera bæinn öruggan á ný fyrir börn og fjölskyldur. Innlent 27. apríl 2026 21:00
Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Grindvíkingar og aðrir virðast verulega reiðir yfir því að valkyrjurnar svokölluðu hafi hist heima hjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í kvöld og borðað saman pítsu. Mörgum finnst það miður þar sem Kristrún hafi verið beðin um að mæta á íbúafund í Grindavík í dag. Kristrún tilkynnti á mánudaginn að hún kæmist ekki á fundinn og spilar kvöldverðurinn ekki þar inn í. Innlent 23. apríl 2026 00:08
Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði kalla eftir samtali við ríkið um mótvægisaðgerðir, eins og að undirbúa gerð varnargarða, vegna nýrrar skýrslu Veðurstofu um hættu á hraunrennsli yfir hluta byggðarinnar. Bæjarstjórinn telur ekki ástæðu til að falla frá áætlunum um ný hverfi á hraunasvæðum. Innlent 22. apríl 2026 20:20
Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Grindvíkingar segja að þeim sé treystandi til að taka ákvarðanir um eigið líf. Þeir þakka landsmönnum og stjórnvöldum fyrir stuðninginn en krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi eðlilegrar endurreisnar bæjarins. Innlent 22. apríl 2026 18:44
Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Bæjarstjórn Grindavíkur stendur fyrir opnum íbúafundi fyrir íbúa Grindavíkur, kjörna fulltrúa og fulltrúa Fasteignafélagsins Þórkötlu. Fundurinn er í beinu streymi á Vísi. Innlent 22. apríl 2026 16:01
Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Hildigunnur Thorsteinsson veðurstofustjóri segir nýjar skýrslur um hættusvæði vegna hraunrennslis kalla á umræðu um það hvort setja þurfi skýrari reglur um hvar megi skipuleggja byggð. Innlent 22. apríl 2026 13:50
Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Ríkisendurskoðun gerir ýmsar athugasemdir við það hvernig staðið var að undirbúningi og gerð varnargarða við Svartsengi og Grindavík. Lögum samkvæmt var ríkislögreglustjóra falið að fara með framkvæmd aðgerða en Ríkisendurskoðun kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að verkefnið hafi af ýmsum ástæðum reynst embættinu ofviða. Innlent 22. apríl 2026 10:32
Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. Innlent 21. apríl 2026 22:10
Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. Innlent 21. apríl 2026 15:30
Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Landris og kvikusöfnun heldur áfram með svipuðu móti og undanfarnar vikur, þar sem innstreymi kviku er hægt en stöðugt. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er enn talin líklegasta sviðsmyndin. Innlent 14. apríl 2026 14:54
Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá Grindvíkingarnir Dagmar Valsdóttir og Eva Lind Matthíasdóttir eru verulega ósáttar við tilmæli Grindavíkurnefndar um veru barna í bænum og skólahald. Þær segja stjórnvöld ekki hlusta og ítrekað taka ákvarðanir um og fyrir Grindvíkinga án samráðs við þá. Innlent 13. apríl 2026 09:59