Viðskipti innlent

Origo kaupir allt hlutafé í Syndis

Eiður Þór Árnason skrifar
Tuttugu öryggissérfræðingar munu starfa hjá Syndis.
Tuttugu öryggissérfræðingar munu starfa hjá Syndis. Syndis

Origo hefur keypt 100 prósent hlut í netöryggisfyrirtækinu Syndis en með kaupunum munu öryggislausnir Origo og Syndis sameinast undir merki þess síðarnefnda. Í sameinuðu fyrirtæki munu starfa tuttugu öryggissérfræðingar og flytjast níu starfsmenn frá Origo til Syndis.

Þetta kemur fram í tilkynningu en að sögn fyrirtækjanna er markmiðið með kaupunum að búa til sterka einingu sem býður heildstæða stafræna öryggisþjónustu og ráðgjöf og þróar varnir gegn netárásum og gagna- og auðkennisþjófnaði.

Sameinuð þekking og reynsla úr báðum áttum er sögð gera Syndis enn betur í stakk búið að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að auka öryggisvitund ásamt því að vera enn betur undirbúin í að verjast netárásum sem séu í sífelldri þróun.

Munu leggja gríðarlega áherslu á rannsóknir og þróunarstarf

„Stafræn umbreyting er orðin ráðandi í starfsemi fyrirtækja og hún kallar á nýja nálgun í vörnum kerfa og gagna. Þá er aukin þörf á eftirliti með rekstrarumhverfi og fyrirbyggjandi aðgerðum. Við sjáum mikil sóknarfæri framundan eftir því sem stafrænni umbreytingu fyrirtækja vex ásmegin og teljum að sú sérhæfing sem Origo teymið býr yfir muni efla getu og þekkingu Syndis á öryggislausnum og vöktun,“ segir Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri Syndis, í tilkynningu.

Anton Már Egilsson, forstöðumaður skýja- og öryggislausna Origo, segir að markmiðið sé að sameina tvær sterkar einingar sem bæti hvor aðra upp og hafi verið á fleygiferð í netöryggismálum.

Theódór R. Gíslason, tæknistjóri Syndis, segir að Syndis verði áfram íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem hafi það markmið að efla öryggi sinna viðskiptavina sem og samfélagsins í heild sinni. 

„Gríðarleg áhersla mun vera á að auka rannsóknar og þróunarstarf hér á landi sem mun mæta sívaxandi þörf fyrir öflugar lausnir og stafrænt öryggi til framtíðar,“ segir Theódór í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×