Flestir áhorfendur í Rússlandi og Englandi á EM Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. apríl 2021 14:32 Evrópumeistaramótið í knattspyrnu fer fram frá 11. júní til 11. júlí í sumar. Alexander Demianchuk\TASS via Getty Images Fresturinn fyrir borgirnar 12 sem halda EM í sumar til að tilkynna áform sín varðandi áhorfendur á leiki mótsins rann út í gær. Þær borgir sem ekki geta tekið við áhorfendum eiga á hættu að missa þá leiki sem þeim hefur verið úthlutað. Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, áætlar að taka ákvörðun um málið 19. apríl.
Evrópumeistaramótið sem átti að fara fram í fyrra, en var frestað vegna kórónuveirufaraldursins, verður spilað frá 11. júní til 11. júlí. London, Glasgow, Dublin, Amsterdam, Kaupmannahöfn, St. Pétursborg, Bilbao, München, Búdapest, Bakú, Róm og Búkarest eru borgirnar sem eiga að halda leiki. En hvað segja yfirvöld í þessum borgum og löndum? London, England Úrslitaleikurinn sjálfur fer fram á Wembley. Bretar vonast til að geta haf að minnsta kosti 20.000 áhorfendur á pöllunum.Matt Cardy/Getty Images Úrslitaleikurinn sjálfur fer fram í London. Nánar tiltekið fer leikurinn fram á Wembley, ásamt sex öðrum leikjum. Allir leikir Englands í riðlinum ásamt einum leik í 16-liða úrslitum, báðir undanúrslitaleikirnir og úrslitaleikurinn sjálfur verður spilaður á þessum 90.000 manna velli. Bresk yfirvöld hafa sagt að allt að 10.000 áhorfendur verði heimilir á völlum landsins fá miðjum maí, og ótakmarkaður fjöldi frá 21. júní. Heimildir herma þó að enska knattspyrnusambandið hafi sagt því evrópska að í kringum 20.000 áhorfendur verði leyfðir þegar leikið verður í riðlinum, og mun fleiri þegar komið er í útsláttarkeppnina. Enska knattspyrnusambandið hefur einnig tilkynnt að þeir séu tilbúnir að taka við leikjum sem ekki er hægt að spila annars staðar. Þeir leikir sem áttu að fara fram í Brussel hafa verið færðir til London. Glasgow, Skotland Yfirlvöld í Skotlandi hafa hingað til haldið í vonina um að Hampden Park í Glasgow geti tekið við áhorfendum á EM. Í gær gáfu þau svo leyfi fyrir 12.000 áhorfenum, sem er um fjórðungur af hámarksáhorfendafjölda á vellínum. Á Hampden Park verða spilaðir fjórir leikir, þrír í riðlakeppninni, og einn í 16-liða úrslitum. Skotar fá því tvo heimaleiki, en leikir þeirra gegn Tékklandi og Króatíu í D-riðli verða spilaðir í Glasgow. Dublin, Írland Írar hafa áhyggjur af því að geta ekki haldið neina leiki á Aviva vellinum í Dublin eftir að írska knattspyrnusambandið sagði UEFA að þeir gætu ekki lofað lágmarksáhorfendafjölda. Málið er enn til skoðunnar, en fjórir leikir eiga að fara fram í Dublin, þrír í riðlakeppni og einn í 16-liða úrslitum. Amsterdam, Holland Hollendingar munu taka við að minnsta kosti 12.000 áhorfendum á Johan Cruyff leikvanginn.Bongarts/Getty Images Johan Cruyff leikvangurinn í Amsterdam mun geta tekið við að minnsta kosti 12.000 áhorfendum samkvæmt hollenska knattspyrnusambandinu. Völlurinn getur tekið allt að 54.000 áhorfendur og mögulega verður hægt að fjölga áhorfendum í Amsterdam ef þróun kórónaveirufaraldursins verður hagstæð. Það munu því þrír leikir í riðlakeppninni og einn leikur í 16-liða úrslitum fara fram í Hollandi. Kaupmannahöfn, Danmörk Þrír leikir í riðlakeppni og einn leikur í 16-liða úrslitum fara fram á Parken í Kaupmannahöfn. Danir munu leyfa að minnsta kosti 11.000 áhorfendur, en völlurinn getur tekið allt að 38.000. Yfirvöld í Danmörku munu skoða hvort hægt verði að bæta við enn fleiri áhorfendum, en segja að það gæti verið nauðsynlegt að loka á þá ef að faraldurinn dreifist. St. Pétursborg, Rússland Krestovsky leikvangurinn, eða Gazprom Arena, er heimavöllur Zenit St Petersburg. Rússar ætla sér að fylla að minnsta kosti helminginn af þeim 68.000 sætum sem völlurinn býður upp á.Soccrates/Getty Images Rússar búast við að geta fyllt að minnsta kosti helming sætana á Krestovsky vellinum í St. Pétursborg. Völlurinn tekur 68.000 áhorfendur og þar fara fram þrír leikir í riðlakeppninni, ásamt einum leik í 8-liða úrslitum. Rússar vonast til að leikirnir geti verið spilaðir með lágmarks hömlum og eru að vinna í því að bjóða erlenda stuðningsmenn velkomna. Því hefur í það minnsta ekki verið hafnað af yfirvöldum. Bilbao, Spánn Yfirvöld á Spáni höfðu áður sagt að þeir væru tilbúnir að taka við um 13.000 áhorfendum á San Mames völlinn í Bilbao, svo lengi sem fjölda smita hefði fækkað nægilega mikið. Spænska knattspyrnusambandið gaf þó frá sér tilkynningu í gær að það væri ómögulegt að standast þau skilyrði sem sett væru fyrir 11. júní og því gætu þeir ekki tekið við áhorfendum. München, Þýskaland Þjóðverjar hafa ekki enn gefið upp þann fjölda áhorfenda sem þeir geta tekið við, en kórónuverufaraldurinn hefur verið að sækja í sig veðrið þar í landi. Heimavöllur Bayern, Allianz Arena, getur tekið við 70.000 áhorfendum og þar eiga að fara fram þrír leikir í riðlakeppninni og einn leikur í 8-liða úrslitum. Búdapest, Ungverjaland Í september tók Puskas leikvangurinn við 15.180 áhorfendum þegar Bayern München vann Sevilla í evrópska ofurbikarnum. Völlurinn getur tekið við 68.000 áhorfendum, en yfirvöld í Ungverjalandi hafa ekki enn gert áætlanir sínar varðandi áhorfendur á Evrópumeistaramótinu opinberar. Bakú, Aserbaídsjan Þrír leikir í riðlakeppni og einn leikur í 8-liða úrslitum eru á dagskrá á Ólympíuleikvangnum í Bakú, en völlurinn getur tekið allt að 69.000 manns. Ákvörðun hefur verið tekin um að Formúlu 1 kappaksturinn sem fer fram þar í landi fjórða til sjötta júní muni ekki taka á móti neinum áhorfendum. Enn á þó eftir að taka ákvörðun um Evrópumeistaramótið í knattspyrnu. Róm, Ítalía Ekki hefur enn verið ákveðið hversu margir áhorfendur verða leyfðir á Stadio Olimpico í Róm.Paolo Bruno/Getty Images Ítalía og Tyrkland mætast í opnunarleik mótsins á Ólympíuleikvangnum í Róm þann 11. júní. Samkvæmt ítalska knattspyrnusambandinu munu stjórnvöld reyna að finna bestu lausnina til að leyfa áhorfendur á þá þrjá leiki í riðlakeppninni og einn leik í 8-liða úrslitum. Ítalska knattspyrnusambandið bætir við að Róm muni taka við áhorfendum, þó að endanlegur fjöldi hafi ekki verið ákveðinn. Búkarest, Rúmenía Stjórnvöld í Rúmeníu stefna á að bjóða 13.000 áhorfendur velkomna á þjóðarleikvanginn í sumar. Völlurinn getur tekið allt að 54.000 áhorfendur í heildina, og verður þetta í fyrsta sinn sem leikið verður á stórmóti á þessum velli. Rúmenar búa sig því undir það að halda þrjá leiki í riðlakeppninni og einn leik í 16-liða úrslitum.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Fótbolti Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Fleiri fréttir Conteh lánaður til Keflavíkur Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 „Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“ Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir Valsleikinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Stjarnan - Valur 2-4 | Stórskemmtun í suddanum á Samsung KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Aron: 4-2 verður að duga í dag Alexander Linta: Stjórnin er að skoða styrkingu á leikmannahópnum Sjá meira