Hótaði pyntingum ef hún hlýddi ekki Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 24. apríl 2021 11:01 Aníta kynntist manni sem þróaði með sér þráhyggju gagnvart henni. Hann reyndi að kaupa sér ást hennar með gjöfum og þegar hún hafnaði gjöfunum þá kom hann þeim til hennar með einhverjum hætti - hvort sem er að skilja þær eftir fyrir utan heimili hennar eða setja þær inn um póstlúguna. Orca Films „Hann hótaði að raka af mér hárið, hótaði að brjóta í mér tennurnar og hótaði því að pynta mig, þannig að ég myndi alltaf sjá eftir því að setja honum þessi mörk,” segir Aníta Runólfsdóttir, tveggja barna móðir, sjúkraliði og félagsráðgjafanemi, sem varð fyrir alvarlegum ofsóknum og ofbeldi af hendi manns sem hún hafði átt í stuttu sambandi við.
Aníta lýsti ofbeldinu sem hún varð fyrir í þættinum Ofsóknir sem sýndur var á Stöð 2 á mánudagskvöld. Manninum kynntist Aníta þegar hún var ný skilin við barnsföður sinn og var að koma undir sig fótunum að nýju; að ganga í gegnum skilnað, flutt í aðra íbúð með dætur sínar tvær og á sama tíma í fullu starfi á Landspítalanum. Fjárhagsörðugleikar höfðu samhliða þessu gert vart við sig og voru kynni við manninn því kærkomin, enda var hann indæll og kom vel fyrir. Hún gerði honum hins vegar grein fyrir að staðan hjá henni væri þannig að hún væri ekki tilbúin í ástarsamband. Fór fljótt út í öfgar „Samskipti okkar voru rosalega yfirborðskennd. Hann kom lítið inn á heimilið og við áttum ekki í kynferðislegu sambandi,” segir Aníta. „Hann fréttir af fjárhagserfiðleikum hjá mér og þetta var meira hann að vekja áhuga minn með því að bjóða mér út að borða, gefa mér gjafir, kaupa á mig föt, kaupa föt á börnin. Þetta var mjög fljótt komið út í mjög miklar öfgar, þar sem hann keypti heilt rúm, keypti síma, og gjafirnar urðu rosalega stórar tiltölulega fljótt.” Aníta vildi ekki taka við gjöfunum en hann skildi þær ýmist eftir fyrir utan heimili hennar, setti þær inn um póstlúgu eða skildi þær jafn vel eftir í barnavagninum. „Það fór að bera aðeins á rauðum flöggum. Hann varð rosalega ágengur og tilætlunarsamur. Bjó alltaf til ástæðu til þess að þurfa að koma til mín. Hann hætti að hringja á undan sér og fór að berja á dyr á öllum tímum sólarhringsins,” segir hún. Hún reyndi þá að slíta sambandinu. „Hann hélt áfram að hafa samskipti við mig og fylgdist vel með mér. Hann vissi alltaf nákvæmlega hvar ég var, hvert ég var að fara, hvað ég var að gera. Hann varð reiður ef ég svaraði ekki strax og ef ég svaraði ekki í símann þá sendi hann mörg sms og þurfti alltaf að vita hvar ég væri,” segir Aníta. Maðurinn tók höfnuninni illa og ofbeldið ágerðist hratt.Orca Films „Ég læt hann vita mjög skýrt að við eigum ekki samleið og að þetta sé ekki alveg að ganga upp. Hann reiðist mjög við það og ég segi þá að það sé nóg komið og ég vilji þetta ekki. Loka á öll samskipti, bæði á samfélagsmiðlum og símanúmerið hans þannig að hann nær ekki að hafa samskipti við mig þar. Þar með hélt ég að þessu væri lokið.” „Fyrsta beina kúgunin” Það reyndist ekki vera, því hann mætti í vinnuna til Anítu. „Hann finnur þarna eina korterið á deginum þar sem það var lítið af starfsfólki á ganginum. Og þá veður hann inn og króar mig af, neitar að yfirgefa vinnustaðinn fyrr en ég hef opnað fyrir símanúmerið hans og hleypi honum aftur inn á samfélagsmiðla. Hann segir mér það mjög skýrt að svona framkoma af minni hálfu sé ekki í boði. Ég var náttúrlega dauðhrædd, og þarna var hann búinn að stíga yfir ákveðna línu - að vaða inn á vinnustað minn og þvinga mig til þess að opna fyrir samskipti aftur. Það var kannski upplifun mín eftir á að þarna var hann kominn með stjórnina og þetta var fyrsta beina kúgunin sem ég fann virkilega fyrir. Þarna vissi ég að hann var kominn yfir þau mörk sem teldust eðlileg og að það væri í raun og veru ekkert eðlilegt við þessi samskipti.” Hótanirnar jukust stöðugt og áfram hélt maðurinn að reyna að kaupa sér ást Anítu með gjöfum - og ætlaði sér að verða ómissandi í lífi hennar. „Ég reyni upp frá þessu að finna allar mögulegar leiðir til að gera honum skýrt að þessi samskipti gengu ekki. Ég reyndi að vera kurteis og reyndi að fara mjúkt í þetta og reyndi líka að vera mjög ákveðin en það virkaði ekki. Það var engin ástæða nógu góð til þess að hann hætti að hafa samskipti við mig,” lýsir Aníta. „Hann var með alls konar ranghugmyndir og ef hann missti stjórn á skapi sínu, þó það hafi bara verið í síma eða bara þegar hann kom við heima að þá var hann rosalega fljótur að réttlæta það með einhverjum gjöfum, nýjum fötum, skóm. Það var rosalega erfitt að neita og að afþakka þetta. Ég reyndi þarna eina helgina að bara slíta þessu fyrir alvöru en þó án þess að ég þori að loka á hann eins og ég hafði gert áður, þannig að hann hefði ekki ástæðu til þess að leita mig uppi.” Ruddist inn á heimilið Aníta gerði manninum það áfram skýrt að hún vildi ekki samband með honum. „Ég var búin að halda mér frá honum heila helgi og ætlaði ekki að gefa mig. Á sunnudeginum hafði ég ekkert svarað honum en hann krafðist þess að ég færi með honum út að borða, en ég sagði nei, og hætti að svara símanum þegar hann sagðist ætla að koma að sækja mig. Innan nokkurra mínútna var hann kominn fyrir utan dyrnar hjá mér og ryðst inn, sannfærður um að það sé annar karlmaður á heimilinu.” Þrátt fyrir að maðurinn hafi leitað af sér allan grun stigmagnaðist reiði hans. „Reiðin verður svo mikil og hann verður svo ógnandi. Stelpurnar mínar tvær voru heima og ég varð bara virkilega hrædd við hann, bað hann um að fara út - og bara grátbað hann um það,” segir Aníta. Aníta fékk strax aðstoð fyrir sig og dóttur sína eftir þau áföll sem þær höfðu orðið fyrir. Báðar eru komnar á góðan stað og lausar við þá hræðslu sem fylgdi þeim í kjölfar ofbeldisins. Orca Films „Og þarna varð hann reiðari og reiðari og varð ógnandi. Hann kýldi mig svona þéttingsfast í öxlina og ég hélt þarna á ársgömlu barninu mínu. Hann náði að króa mig af inni á baðherbergi, sem er flísalagt, og fyrir utan stóð eldri dóttir mín og öskraði af alefli, öllum sálarkrafti. Ég reyndi að taka upp símann til að hringja eftir hjálp en hann stóð þarna yfir mér og reyndi að taka mig kverkataki. Ég varð bara virkilega hrædd. Barnið mitt, sem ég hélt á í fanginu, öskraði og grét en hans viðbrögð við því að ég væri að hringja var að taka símann af mér. Hann fór ekki út af baðherberginu fyrr en ég missti takið á dóttur minni og hún datt á flísarnar.” Barninu varð ekki meint af hann maðurinn vék þá og hleypti mæðgunum út af baðherberginu. „Mín fyrstu viðbrögð voru að klæða þær í skó, taka bíllyklana og fara út. Eina sem ég hugsaði var að koma okkur í skjól. Ég hafði ekki síma og það var enginn nálægt. Það var enginn til að heyra öskrin, engir nágrannar eða neitt.” Maðurinn lét Anítu aftur fá símann en hló að henni á meðan hún var að reyna að koma sér út. Hún hljóp út í bíl, en þar lét hann ekki staðar numið og settist upp í sinn bíl og elti þær. Aníta hringdi þá á lögreglu sem mætti henni á Hafnarfjarðarvegi. Maðurinn keyrði þá í burtu. Hún fyllti út skýrslu á lögreglustöðinni og hún var beðin um að láta vita samstundis ef maðurinn setti sig í samband við hana aftur. Sem gerðist meðal annars tæpri viku síðar þegar maðurinn elti Anítu inn á líkamsræktarstöð í Hafnarfirði og hótaði henni. Komin á góðan stað í dag Aníta fékk nálgunarbann á hendur manninum, öryggishnapp og er með símanúmerið sitt skráð á forgangslista hjá lögreglu. Dóttir hennar upplifði mikla hræðslu en fór í sérhæfða listmeðferð og er að sögn Anítu á góðum stað í dag. „Mér líður vel í dag. Við erum flutt úr þessu húsnæði þannig að við erum ekki lengur á jarðhæð. Ég er komin aftur í nám og sé fram á að reyna að nýta mér þessa reynslu til gagns. Ég hef skilning gagnvart öðrum sem lenda í þessum aðstæðum. Það er erfitt að lesa í einstaklinga sem verða svona ágengir. Það sést ekkert utan á fólk og það getur hver sem er lent í þessu. Þetta var rosalega erfitt og erfitt að komast upp úr þessu andlega, þannig að maður upplifi sig öruggan á sínu heimili og öruggan að fara bara út í búð. Samviska mín var alltaf mest að börnin mín hafi þurft að þola upp á þetta. Ég reyndi sjálf og vildi ekki að hann myndi taka stjórnina af mínu lífi með þessari háttsemi,” segir Aníta. Ítarleg umfjöllun um Anítu og þær ofsóknir sem hún varð fyrir var til umfjöllunar í þættinum Ofsóknir á Stöð 2. Stiklu úr þættinum má sjá hér fyrir neðan.
Ofsóknir Tengdar fréttir „Við sofum ekki yfir þessu“ „Maður er svo hræddur. Maður er svo rosalega hræddur um barnið sitt. Það koma svona tilfinningar upp hjá manni sem mann datt bara ekki til hugar að væru til,“ segir Ósk Jónsdóttir, móðir Ölmu Daggar Torfadóttur sem hefur sætt ofsóknum í tæplega tíu ár. 15. apríl 2021 07:00 Fjölskyldan biður fólk um að hugsa sig tvisvar um áður en það setur sig í dómarasætið Foreldrar og systir karlmanns sem hefur ofsótt Ölmu Dögg Torfadóttur hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Stöðvar 2 um málið. Alma Dögg sagði sögu sína í þættinum Ofsóknir í gærkvöld, þar sem hún lýsti því hvernig maðurinn hefur ofsótt hana í um áratug, eða frá því hún var átján ára. Hún lýsti hræðslu og vanlíðan sem leiddi til þess að hún hraktist úr heimabæ sínum, Akranesi, vegna ofsóknanna. 6. apríl 2021 12:00 Hefur þurft að lifa við stöðugar ofsóknir í tíu ár Alma Dögg Torfadóttir var átján ára þegar ofsóknir á hendur henni hófust. Hún bjó og starfaði í heimabæ sínum, Akranesi, en hraktist burt eftir ítrekað áreiti frá manni sem hún þekkti ekkert, að öðru leyti en því að hafa afgreitt hann í sjoppu sem hún vann í. Nú tíu árum síðar er áreitið enn í gangi. Alma Dögg sagði sögu sína í þættinum Ofsóknir á Stöð 2 í gærkvöld. 6. apríl 2021 10:57 Mest lesið „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga Innlent „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Innlent Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Innlent Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Innlent Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Innlent Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Innlent Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Innlent Fleiri fréttir Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Meirihluti telur stjórnvöld gera of lítið til að draga úr losun Lyfjapokar úr gömlum gardínum og borðdúkum á Selfossi „Þessi ákvörðun var tekin að frumkvæði Þórðar“ Staðan ólík því sem sést í Bandaríkjunum enda fylgið á fleygiferð #ÉgKýs: Kosningafundur ungs fólks „Ég hafna þessari gagnrýni algjörlega“ Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Ráðherra hafnar gagnrýni og óvissa um tónleika á Hvalasafninu Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi Þingmaður Pírata vill í kærunefnd útlendingamála Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Sjá meira
„Við sofum ekki yfir þessu“ „Maður er svo hræddur. Maður er svo rosalega hræddur um barnið sitt. Það koma svona tilfinningar upp hjá manni sem mann datt bara ekki til hugar að væru til,“ segir Ósk Jónsdóttir, móðir Ölmu Daggar Torfadóttur sem hefur sætt ofsóknum í tæplega tíu ár. 15. apríl 2021 07:00
Fjölskyldan biður fólk um að hugsa sig tvisvar um áður en það setur sig í dómarasætið Foreldrar og systir karlmanns sem hefur ofsótt Ölmu Dögg Torfadóttur hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Stöðvar 2 um málið. Alma Dögg sagði sögu sína í þættinum Ofsóknir í gærkvöld, þar sem hún lýsti því hvernig maðurinn hefur ofsótt hana í um áratug, eða frá því hún var átján ára. Hún lýsti hræðslu og vanlíðan sem leiddi til þess að hún hraktist úr heimabæ sínum, Akranesi, vegna ofsóknanna. 6. apríl 2021 12:00
Hefur þurft að lifa við stöðugar ofsóknir í tíu ár Alma Dögg Torfadóttir var átján ára þegar ofsóknir á hendur henni hófust. Hún bjó og starfaði í heimabæ sínum, Akranesi, en hraktist burt eftir ítrekað áreiti frá manni sem hún þekkti ekkert, að öðru leyti en því að hafa afgreitt hann í sjoppu sem hún vann í. Nú tíu árum síðar er áreitið enn í gangi. Alma Dögg sagði sögu sína í þættinum Ofsóknir á Stöð 2 í gærkvöld. 6. apríl 2021 10:57