Snæfell hafði betur í botnslagnum og Breiðablik lagði Keflavík Anton Ingi Leifsson skrifar 28. apríl 2021 20:57 Breiðablik vann góðan sigur á Keflavík í kvöld. vísir/vilhelm Þremur leikjum er lokið í Domino's deild kvenna í kvöld. Fjölnir vann góðan sigur á Haukum í Grafarvogi, Snæfell vann botnslaginn gegn KR og Breiðablik skellti Keflavík.
Breiðablik byrjaði af miklum krafti gegn Keflavík í kvöld. Skoruðu Blikar 27 stig í fyrsta leikhlutanum og voru 42-22 yfir í hálfleik. Þrátt fyrir áhlaup gestana frá Keflavík í síðari hálfleik þá héldu Blikar vel á spilunum og unnu að lokum sjö stiga sigur, 73-66 Blikarnir eru í sjötta sætinu með tólf stig en Keflavík er í öðru sæti með 26 stig. Iva Georgieva var stigahæst í Blikaliðinu með 27 stig og sjö fráköstum en framlagshæst var Jessica Kay Loera með átta stig, átta fráköst og sextán stoðsendingar. Í liði Keflavíkur var það Daniela Wallen Morillo sem var stigahæst. Hún gerði nítján stig og bætti þar að auki við átján fráköstum. Anna Ingunn Svansdóttir kom næst með átján stig. Snæfell vann ansi mikilvægan sigur á KR í botnslagnum en leikurinn var upp á líf og dauða í fallbaráttunni. Lokatölur urðu 77-61 eftir að Snæfell hafði leitt 44-34 í hálfleik. Snæfell er þar af leiðandi með sex stig í næst neðsta sætinu en KR er með fjögur stig. Þrjár umferðir eru eftir en neðsta liðið fellur úr deildinni. Haiden Denise Palmer var mögnuð í liði Snæfells. Hún gerði 39 stig, tók níu fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Anna Soffía Lárusdóttir bætti við sextán stigum. Annika Holopainen var stigahæst hjá KR með sextán stig og tók hún einnig ellefu fráköst. Perla Jóhannsdóttir kom næst með fjórtán stig og fimm fráköst. Umferðin verður gerð upp í Domino's Körfuboltakvöldi klukkan 17.00 á morgun.
Dominos-deild kvenna Breiðablik Snæfell KR Keflavík ÍF Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Komin sjö mánuði á leið en spilar samt á Opna bandaríska Golf Fleiri fréttir Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira