Innlent

Hægt að fá vín á N1 á sunnudegi

Snorri Másson skrifar
Arnar Sigurðsson er eigandi Santewines SAS.
Arnar Sigurðsson er eigandi Santewines SAS. Facebook

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins tilkynnti um metár í rekstri sínum í ársskýrslu í gær, með yfir 50 milljarða veltu. Á sama tíma hafa fleiri en 1.000 vínpantanir þegar borist Arnari Sigurðssyni vínkaupmanni, sem hóf á dögunum að reka vefverslun með áfengi í gegnum franskt fyrirtæki, sem er þó með lager á Íslandi.

Arnar hefur gagnrýnt rekstur ÁTVR um árabil og hóf að selja vín á sante.is í samkeppni við verslunina í síðustu viku. Hann segir að hægt sé að fá vínið, eða bjórinn eða vodkann þess vegna, sendan til sín samdægurs ef pöntunin berst fyrir hádegi. Jafnvel er hægt að sækja pöntunina á næstu N1-stöð í gegnum Dropp, óháð vikudegi.

“Viðtökurnar hafa verið vonum framar. Það er ljóst að neytendur kunna vel að meta valfrelsi þegar kemur að þessum viðskiptum rétt eins og öðrum. Við erum búin að selja sem nemur heilum gámi af bjór og rauðvíni og hvítvíni og kampavíni og samþættum pökkum mikið,“ sagði Arnar í hádegisfréttum Bylgjunnar.

„Þannig að þetta er búið að vera alger geggjun, satt best að segja. Ætli það séu ekki komnar hátt í 1.000 pantanir á þessum stutta tíma frá því að við tókum af stað.“

ÁTVR megi ekki kalla sig Vínbúðina

Arnar óttast ekki lagalegar afleiðingar af þessum viðskiptaháttum, enda rúmist þetta innan laganna.

„Þvert á móti. Við ættum varla að vera að tala um lagaleg álitamál þegar kemur að einokunarverslunarfyrirkomulagi, rekum við ekki einmitt samkeppniseftirlitið til að fyrirbyggja þannig rekstur?“ spyr Arnar.

Sjálfur hefur hann kvartað til Neytendastofu vegna ÁTVR, af því að hann telur ólöglegt að verslunin kalli sig Vínbúðina.

„Samkvæmt vörumerkjalögum geta menn ekki eignað sér almenn vörumerki. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins heitir réttu nafni samkvæmt lögum Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins og hefur enga heimild til að endurnefna sig Vínbúðina. Verslunin á þar með ekkert tilkall til almenns vöruheitis á borð við Vínbúð. Þeir eiga að heita það sem þeir eiga að heita samkvæmt lögum.“

Metár hjá ÁTVR

ÁTVR hagnaðist um 1,8 milljarða í ár og eignir verslunarinnar nema um 7,3 milljörðum samkvæmt nýbirtri árs- og samfélagsskýrslu. Arnar telur að þessu fé væri betur varið í aðra grunnþjónustu í samfélaginu og telur einnig ljóst af skýrslu félagsins að aðgengi að áfengi hafi einfaldlega aukist á árinu.

Í skýrslunni er sagt frá því að árangur hulduheimsókna til að kanna hvort nægilega vel sé fylgst með aldri viðskiptavina hafi aðeins verið 78%, sem er undir 90% viðmiðunarmarkinu.

„Það er einhver brotalöm í gangi þar, því miður,” segir Arnar.

Frumvarp dómsmálaráðherra sem heimilar áfengissölu smærri brugghúsa á framleiðslustað hefur fengið fyrstu umræðu á Alþingi og er nú til meðferðar í allsherjarnefnd. Þar verður innlend netverslun einkaaðila með áfengi þó ekki heimiluð og því þarf enn um sinn að stunda hana í gegnum erlendar netverslanir.

Dæmi úr raunveruleikanum:




Tengdar fréttir

Netverslun með áfengi lýðheilsumál

Vínkaupmaður fagnar fyrirhuguðu frumvarpi dómsmálaráðherra um að opna á innlenda netsölu á áfengi. Slík verslun sé nútímaleg, í anda lýðheilsu og gefi meiri möguleika til að miðla upplýsingum til kaupandans. Netverslun þýði ekki að ÁTVR verði lokað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×