Austurríkismenn voru sterkari aðilinn í upphafi leiks og það var því fyllilega sanngjarnt þegar Stefan Lainer kom þeim yfir á 18. mínútu eftir magnaða sendingu Marcel Sabitzer.
Adam var þó ekki lengi í paradís en aðeins tíu mínútum síðar jafnaði gamla brýnið Goran Pandev metin fyrir Norður-Makedóníu.
Hann fylgdi þá eftir er Daniel Bachmann missti knöttinn eftir árekstur við leikmann Norður-Makedóníu. Boltinn féll fyrir Pandev sem gat ekki annað en skorað og staðan 1-1 er liðin gengu til búningsherbergja þegar flautað var til hálfleiks.
Staðan var 1-1 allt þangað til tólf mínútur lifðu leiks. Þá kom varamaðurinn Michael Gregoritsch Austurríki yfir á nýjan leik eftir frábæra fyrirgjöf David Alaba.
50% of #AUT's goals they have ever scored at the European Championships have been assisted by David Alaba.
— Squawka Football (@Squawka) June 13, 2021
What a ball that was. pic.twitter.com/41iREG3WQB
Marko Arnautovic, annar varamaður, kom Austurríki í 3-1 í uppbótartíma og þar við sat.