Innlent

Íslenska lögregluforlagið harmar mistök í auglýsingu

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Auglýsingin sem birtist í Morgunblaðinu.
Auglýsingin sem birtist í Morgunblaðinu. Skjáskot

Íslenska lögregluforlagið segist harma að í auglýsingu á vegum félagsins, sem birtist í Morgunblaðinu 17. júní síðastliðinn, hafi nokkur fyrirtæki, sveitarfélög og samtök verið „skráð í auglýsinguna“ fyrir mistök.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá forlaginu.

„Unnið hefur verið að því að hafa samband við forsvarsmenn þeirra til að biðjast afsökunar og viðtökur oftar en ekki verið góðar. En það skal tekið fram að aðilar sem rötuðu fyrir mistök í auglýsinguna verða að sjálfsögðu ekki krafðir um greiðslu fyrir hana,“ segir í yfirlýsingunni.

Þar segir einnig að athugasemdir hafi verið gerðar við að aðilum sem ákváðu að vera með hafi ekki verið ljóst hvaða myndi koma fram í auglýsingunni. 

„Þær athugasemdir eiga rétt á sér og eru teknar alvarlega af hálfu útgáfuaðila og mun félagið framvegis leitast við að upplýsa styrkveitendur betur um efni þeirra auglýsinga sem verið er að birta hverju sinni.“

Sinna söfnunum og útgáfu fyrir lögregluna

Í yfirlýsingunni segir einnig að Íslenska lögregluforlagið ehf. hafi verið starfrækt frá árinu 2000 og sé í eigu Nordisk Kriminalkrønike ApS, sem sé í eigu sjóðsins LEWHF. Upprunalegur tilgangur félagsins hafi verið útgáfa norrænna sakamála og útgáfa fyrir Íþróttasamband lögreglumanna en bókaútgáfunni hafi verið hætt árið 2009.

„Áhersla forlagsins nú er að styrkja Íþróttasamband lögreglumanna og styðja þannig við íþróttir lögreglumanna á Íslandi. Koma lögregluforlagsins til landsins var að frumkvæði Íþróttasambands lögreglumanna á Íslandi,“ segir í yfirlýsingunni.

„Sambærileg forlög voru starfrækt í tugi ára á hinum Norðurlöndunum en frá árinu 2017 er íslenska forlagið það eina sem eftir stendur. Lögregluíþróttir á hinum Norðurlöndunum voru þannig styrktar af sambærilegum lögregluforlögum í sínu heimalandi. Nordisk Kriminalkrønike ApS var móðurfélag allra forlaganna en er nú fyrst og fremst rekið utan um útgáfu hljóðbóka þeirra rita sem forlögin hafa gefið út í gegnum tíðina.

Íslenska lögregluforlagið hefur hin síðari ár tekið að sér útgáfustarfsemi fyrir Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna, FÍFL og Lögreglufélag Reykjavíkur, LR. Forlagið annast þá milligöngu um þau verkefni sem félagið hefur samið um og ber fjárhagslega ábyrgð á og greiðir allan kostnað við, sér um útgáfu reikninga og tekur jafnframt á sig þau afföll sem kunna að myndast vegna verkefnanna, sem geta oft verið nokkur. Þá hefur forlagið einnig tekið að sér safnanir fyrir aðra aðila. Framkvæmdastjóri félagins hefur mest fengið 750.000 kr. í þóknun á ársgrundvelli auk stjórnarlauna 300.000 kr., fyrir árið, ásamt tveimur öðrum stjórnarmönnum. Síðustu stjórnarlaun sem voru greidd voru fyrir árið 2019.“


Tengdar fréttir

FÍFL er endur­­vakið fé­lag lög­­reglu­­deildar sem er ekki lengur til

Fé­lag ís­lenskra fíkni­efna­lög­reglu­manna (FÍFL) eru fé­laga­sam­tök starfs­stéttar sem er í raun ekki lengur til. Fíkni­efna­deild lög­reglunnar var lögð niður árið 2016 og heyrir fyrri starf­semi hennar nú undir svið mið­lægrar rann­sókna­deildar. Fjármagn sem FÍFL safnar hefur að mestu runnið til einkafyrirtækis með óljósu eignarhaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×