FH-ingar geta í kvöld komist í átta liða úrslit bikarsins sjöunda árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2021 15:30 Steven Lennon skoraði þrennu á Skaganum fyrr í sumar. Vísir/Hulda Margrét Fimm lið munu tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í kvöld og bætast í hóp með Vestra og ÍR sem tryggði sig áfram í gærkvöldi. Tveir Pepsi Max deildar slagir verða í kvöld en alls eru sjö Pepsi Max deildarlið í eldlínunni í leikjum kvöldsins. Bikarfjörið byrjar með leik Pepsi Max deildarliðanna Keflavíkur og KA á Nettóvellinum í Keflavík klukkan 17.00 en hann er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Kvöldið endar síðan með leik Fylkis á móti Lengjudeildarliði Hauka en sá leikur hefst klukkan 20.15 og verður einnig sýndur beint á Stöð 2 Sport. Klukkan 18.00 eru síðan hinir þrír leikirnir þar sem HK tekur á móti KFS frá Vestmannaeyjum, Valur mætir Völsungi á Hlíðarenda og loks hinn Pepsi Max deildar slagur kvöldsins þegar ÍA fær FH í heimsókn á Norðurálsvöllinn á Akranesi. FH-ingar hafa komist í átta liða úrslit bikarkeppninnar undanfarin sex ár og vinni þeir á Skaganum verða þeir þar í sjöunda árið í röð. FH datt út úr 32 liða úrslitum bikarsins sumarið 2014 en hefur frá 2015 alltaf komust í átta liða úrslitin og undanfarin fimm ár hefur Hafnarfjarðarliðið verið í undanúrslitum bikarsins. Af liðunum sem eru að spila í kvöld geta FH, Valur og HK komist í átta liða úrslitin annað árið í röð. Valur og HK voru þar aftur á móti ekki sumarið 2019. FH í bikarkeppninni undanfarin ár: 2020 - Undanúrslit 2019 - Silfurverðlaun 2018 - Undanúrslit 2017 - Silfurverðlaun 2016 - Undanúrslit 2015 - Átta liða úrslit 2014 - 32 liða úrslit Mjólkurbikarinn er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Mjólkurbikarinn er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Mjólkurbikarinn FH Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira
Tveir Pepsi Max deildar slagir verða í kvöld en alls eru sjö Pepsi Max deildarlið í eldlínunni í leikjum kvöldsins. Bikarfjörið byrjar með leik Pepsi Max deildarliðanna Keflavíkur og KA á Nettóvellinum í Keflavík klukkan 17.00 en hann er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Kvöldið endar síðan með leik Fylkis á móti Lengjudeildarliði Hauka en sá leikur hefst klukkan 20.15 og verður einnig sýndur beint á Stöð 2 Sport. Klukkan 18.00 eru síðan hinir þrír leikirnir þar sem HK tekur á móti KFS frá Vestmannaeyjum, Valur mætir Völsungi á Hlíðarenda og loks hinn Pepsi Max deildar slagur kvöldsins þegar ÍA fær FH í heimsókn á Norðurálsvöllinn á Akranesi. FH-ingar hafa komist í átta liða úrslit bikarkeppninnar undanfarin sex ár og vinni þeir á Skaganum verða þeir þar í sjöunda árið í röð. FH datt út úr 32 liða úrslitum bikarsins sumarið 2014 en hefur frá 2015 alltaf komust í átta liða úrslitin og undanfarin fimm ár hefur Hafnarfjarðarliðið verið í undanúrslitum bikarsins. Af liðunum sem eru að spila í kvöld geta FH, Valur og HK komist í átta liða úrslitin annað árið í röð. Valur og HK voru þar aftur á móti ekki sumarið 2019. FH í bikarkeppninni undanfarin ár: 2020 - Undanúrslit 2019 - Silfurverðlaun 2018 - Undanúrslit 2017 - Silfurverðlaun 2016 - Undanúrslit 2015 - Átta liða úrslit 2014 - 32 liða úrslit Mjólkurbikarinn er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Mjólkurbikarinn er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
FH í bikarkeppninni undanfarin ár: 2020 - Undanúrslit 2019 - Silfurverðlaun 2018 - Undanúrslit 2017 - Silfurverðlaun 2016 - Undanúrslit 2015 - Átta liða úrslit 2014 - 32 liða úrslit
Mjólkurbikarinn er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Mjólkurbikarinn er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Mjólkurbikarinn FH Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira