Eyjamenn skrefi nær Pepsi Max-deildinni Valur Páll Eiríksson skrifar 3. september 2021 19:30 ÍBV er í vænlegri stöðu. Mynd/@íbv.fc ÍBV vann 4-1 sigur á Selfossi í Suðurlandsslag kvöldsins í Lengjudeild karla í fótbolta. ÍBV treystir stöðu sína í öðru sæti deildarinnar.
Liðin mættust á Selfossi í kvöld en Valdimar Jóhannsson kom heimamönnum þar yfir eftir hálftímaleik. Portúgalinn Telmo Castanheira jafnaði fyrir gestina úr Vestmannaeyjum undir lok fyrri hálfleiks og 1-1 stóð í hléi. Þegar aðeins tvær mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum kom Guðjón Pétur Lýðsson ÍBV 2-1 yfir og þá tvöfaldaði Breki Magnússon forystu þeirra fjórum mínútum síðar, á 51. mínútu. 3-1 stóð fram á 89. mínútu þegar Gonzalo Zamorano innsiglaði 4-1 sigur Eyjamanna. ÍBV er eftir sigurinn með 41 stig eftir 18 leiki í öðru sæti deildarinnar, tíu stigum á eftir toppliði Fram sem hefur þegar tryggt sæti sitt í efstu deild. Eyjamenn hafa leikið einum leik færra en Framarar, sem og Kórdrengir, sem berjast við ÍBV um annað sætið. Kórdrengir eru fjórum stigum á eftir ÍBV, með 37 stig eftir 19 leiki í þriðja sæti. Selfoss er með 21 stig í níunda sæti og eru Selfyssingar öruggir frá falli þar sem þeir eru tíu stigum á undan Þrótti sem er í efra fallsætinu, en Þróttarar get mest fengið níu stig úr síðustu þremur leikjum sínum. Jafnt í Grindavík Einn leikur var á dagskrá í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. Grindavík og HK skildu þar jöfn 1-1 í Grindavík í fyrsta leik sautjándu og næst síðustu umferðar. Bæði lið eru hluti af gríðarjafnri botnbaráttu deildarinnar. Grindavík er með 17 stig í sjötta sæti deildarinnar, stigi á undan HK sem er ásamt Gróttu með 16 stig í sætunum fyrir neðan. ÍA er í efra fallsæti deildarinnar með 14 stig og geta þau fjögur lið því öll fallið úr deildinni.
Lengjudeild kvenna Lengjudeild karla ÍBV UMF Selfoss UMF Grindavík HK Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira