Körfubolti

Frábær leikur Martins dugði ekki til

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Slæm byrjun kostaði Valencia sigurinn í kvöld.
Slæm byrjun kostaði Valencia sigurinn í kvöld. EPA-EFE/TOLGA BOZOGLU

Martin Hermannsson heldur áfram að spila frábærlega í liði Valencia en það dugði ekki í kvöld er liðið lá gegn Gran Canaria á heimavelli í Evrópubikarnum, lokatölur 89-90.

Martin átti einkar góðan október mánuð og virðist ætla að halda því áfram. Hann var næst stigahæstur Valencia-manna en því miður kostaði slæm byrjun þá sigurinn í kvöld. 

Gestirnir unnu fyrstu tvo leikhlutana og var það í raun ekki fyrr en í fjórða leikhlut sem heimamenn bitu frá sér.

Því miður var það of lítið of seint og gestirnir lönduðu eins stigs sigri, lokatölur 89-90. Var þetta annað tap Valencia í þremur leikjum í B-riðli Evrópubikarsins. Alls eru 10 lið í riðlinum og Valencia hefur því nægan tíma til að snúa dæmin við.

Martin skoraði 15 stig í leiknum ásamt því að gefa þrjár stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×