Ben: Katrín Tanja hefur verið lengur í fjölskyldunni en sjö ára dóttir mín Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2021 11:32 Það var alltaf stutt í gleðina og grínið hjá þeim Katrínu Tönju Davíðsdóttur og Ben Bergeron. Instagram/@katrintanja Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur slitið samstarfi sínu við þjálfarann Ben Bergeron en þau kveðja bæði hvort annað með hjartnæmum pistlum á samfélagsmiðlum sínum.
Katrín Tanja hefur nú leitað til Finnans Jami Tikkanen um að þjálfa sig en hann þjálfar einnig Anníe Mist Þórisdóttur og Björgvin Karl Guðmundsson. Katrín hefur verið búsett í Bandaríkjunum undanfarin ár en flytur nú aftur heim til Íslands. Bæði Katrín Tanja og Ben tala mjög vel um hvort annað í pistlum sínum og þau eru þakklát fyrir samstarfið. „Katrín hefur verið hluti af fjölskyldu minni lengur en sjö ára dóttir mín og fjölskylda mín mun alltaf líta á hana sem sjöunda meðliminn. Frá deginum sem hún kom inn um dyrnar hjá CrossFit New England þá hefur hún fyllt lífið okkar af gullna ljósinu sem streymir alltaf frá henni,“ skrifaði Ben Bergeron. „Sum af bestu árum ævi minnar. Árið 2014 varð Ben Bergeron þjálfarinn minn og nú átta árum síðar á ég fjölskyldu út lífið,“ byrjar Katrín Tanja pistil sinn. „Takk fyrir Katrín fyrir ákafa þinn til að læra. Ég hef aldrei hitt annan sem er jafnáhugasamur að láta þjálfa sig. Takk fyrir að ekki láta björtu ljósin trufla þig. Þú ert staðföst og einsetur þér alltaf að fylgja planinu og ert mesti keppnismaður sem ég hef kynnst,“ skrifaði Ben. „Takk fyrir að ódrepandi skuldbindingu við markmiðin þín. Þú ert mér og öðrum svo mikill innblástur,“ skrifaði Ben. Það má finna allan þennan lista hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Ben Bergeron (@benbergeron) Katrín Tanja segir frá því þegar hún kom fyrst til Boston aðeins tuttugu ára gömul. „Ég hafði enga hugmynd um það hversu mikið Ben og hans fjölskylda áttu eftir að breyta mínu lífi og móta það hver ég er. Saman fórum við í stórkostlegt ferðalag fullt af áskorunum og tækifærum til að vaxa. Það voru tímar til að hlæja saman en líka einn erfiðasti tíminn í mínu lífi. Við komumst alltaf í gegnum þetta saman og vá hvað við höfum vaxið og þróast saman,“ skrifaði Katrín. „Ég gæti ekki verið þakklátari fyrir árin okkar saman og við getum haldið upp á allt sem við afrekuðum og þakkað fyrir að eiga fjölskyldu út lífið. Þó að þetta endi samband okkar sem þjálfara og skjólstæðings þá var Bergeron fjölskyldan alltaf miklu meira en það fyrir mig,“ skrifaði Katrín. „Þetta var án nokkurs vafa erfiðasta ákvörðunin sem ég hef tekið í mínu lífi. Það var bara kominn tími fyrir mig að fara aftur þar sem hjarta mitt og rætur liggja og ég mun halda ferðalagi mínu áfram á Íslandi,“ skrifaði Katrín. Það má sjá allan pistil hennar hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Katri n Tanja Davi ðsdo ttir (@katrintanja)
CrossFit Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Sjá meira