Þrír liðsfélagar Hjartar sáu rautt í tapi Pisa Arnar Geir Halldórsson skrifar 7. nóvember 2021 21:24 Hjörtur Hermannsson skrifar undir samninginn við Pisa. mynd/Pisa Þrír liðsfélagar Hjartar Hermannssonar fengu að líta rauða spjaldið í leik Cittadella og Pisa í ítölsku B-deildinni í fótbolta í kvöld.
Hjörtur hóf leik í vörn Pisa sem eygði þess von að tylla sér á topp Serie B með sigri á Cittadella í kvöld. Ungverski landsliðsmaðurinn Adam Nagy, sem leikur á miðju Pisa, fékk að líta beint rautt spjald á 39.mínútu og róðurinn því orðinn þungur fyrir gestina. Heimamenn í Cittadella voru fljótir að nýta sér liðsmuninn og ná forystunni með marki á 47.mínútu. Eftir klukkutíma leik urðu hlutirnir enn erfiðari fyrir Hjört og félaga þegar Idrissa Toure fékk að líta rauða spjaldið. Það var svo til að bæta gráu ofan á svart þegar Lorenzo Lucca, sóknarmaður Pisa, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt á 68.mínútu. Pisa lék því síðustu rúmlega tuttugu mínúturnar með aðeins átta leikmenn inn á vellinum en Hirti var skipt af velli á 86.mínútu og skömmu síðar gulltryggðu heimamenn sér sigurinn með marki í uppbótartíma. Lokatölur 2-0 fyrir Cittadella og Pisa því áfram í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Brescia.
Ítalski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira