Slæmur þriðji leikhluti varð Jóni Axeli og félögum að falli Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. nóvember 2021 17:55 Jón Axel í leik með Phoenix Suns í sumardeild NBA körfuboltans. Phoenix Suns Jón Axel Guðmundsson og félagar hans í Fortitudo Bologna þurftu að sætta sig við 14 stiga tap er liðið tók á móti Venezia í ítalska körfuboltanum í dag, 77-91.
Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og liðin skiptust á að hafa foyrstuna. Mestur varð munurinn fimm stig þegar Jón Axel og félagar komust í 19-14, en staðan var jöfn, 24-24, að loknum fyrsta leikhluta. Svipaða sögu er að segja af öðrum leikhluta, en gestirnir í Bologna náðu mest sjö stiga forskoti. Jón Axel og félagar komu til baka og jöfnuðu metin, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 40-42, Venezia í vil. Gestirnir keyrðu svo gjörsamlega yfir Jón Axel og félaga í þriðja leikhluta. Eftir að heimamenn höfðu skorað fyrstu fjögur stig seinni hálfleiksins kom 13-4 kafli hjá Venezia, en liðið náði mest 19 stiga forskoti. Þegar komið var að lokaleikhlutanum var staðan 53-69. Jón Axel og félagar náðu svo að kroppa aðeins í forskot gestanna í fjórða leikhluta og minnkuðu muninn í sex stig. Gestirnir tóku þá við sér á ný og unnu að lokum öruggan 14 stiga sigur, 77-91. Jón Axel skoraði tvö stig fyrir Fortitudo Bologna og tók auk þess fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu. Liðið situr í 14. sæti deildarinnar af 16 og hefur fengið fjögur stig í átta leikjum. Venezia situr í sjöunda sæti með átta stig.
Körfubolti Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira