Innlent

136 greindust smitaðir innan­lands í gær

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
162 greindust smitaðir af veirunni í gær. 
162 greindust smitaðir af veirunni í gær.  Vísir/Vilhelm

136 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. 73, eða 53 prósent, voru utan sóttkvíar við greiningu en 63, eða um 47 prósent í sóttkví. 

Þetta kemur fram í nýuppfærðum tölum á covid.is. Níu greindust smitaðir af veirunni á landamærunum. 1.566 eru nú í einangrun  en voru 1.532 í gær, og 1.772 í sóttkví, en 1.816 voru í sóttkví í gær. 171 er nú í skimunarsóttkví. 

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 502,9, en var 500,1 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 28,4 en var 28,1 í gær.

Ekki er búið að uppfæra á covid.is hve margir eru inniliggjandi á Landspítala í dag með Covid-19. 

Alls hafa 18.198  manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 35 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 1.405 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá var 847 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 727 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×