Útsalan í fullum gangi í Rúmfatalagernum Rúmfatalagerinn 11. janúar 2022 08:45 Allt til heimilisins á frábæru verði.
Rúmfatalagerinn byrjar árið með stæl og býður 20 til 50% afslátt af völdum útsöluvörum ásamt öðrum góðum tilboðum. Útsalan hófst formlega 4. janúar en starfsfólk Rúmfatalagersins gat ekki beðið og hóf nýtt ár af krafti með árlegri nýársbombu. „Hér er alltaf stuð og mikið gaman og okkur leiðist ekki að bjóða gott verð. Við byrjuðum því á nýársbombu dagana 2. og 3. janúar og buðum 20% afslátt af öllum vörum, svo hófst útsalan fyrir alvöru beint í kjölfarið,“ segir Hilmar Már Baldursson, verslunarstjóri Rúmfatalagersins á Akureyri en verslunin flutti í nýtt og glæsilegt verslunarhúsnæði við Norðurtorg síðastliðið sumar. Hilmar Már Baldursson, verslunarstjóri Rúmfatalagersins á Akureyri. Hann segir hægt að gera frábær kaup og allir ættu að geta fundið það sem þá vantar inn á heimilið á góðu verði. „Rúmfatalagerinn er gjarnan fyrsti viðkomustaður þeirra sem eru að stofna heimili og fólk þarf ekki að leita lengra. Hjá okkur fæst allt fyrir heimilið; húsgögn, borð og stólar, rúm og kommóður, hnífapör, matarstell, gardínur og púðar svo fátt eitt sé nefnt. Við erum með góðan afslátt af vörum úr flestöllum flokkum, metravöru og rúmfatnaði, handklæðum og baðvörum, sængum og koddum. Sængurnar eru til dæmis frá 1.495 krónum sem ég tel líklega að sé ódýrasta sæng sem hægt er að finna,“ segir Hilmar. Jólatraffíkin er nýafstaðin en Hilmar segir fólk taka vel í útsöluna. Margir nýta nýtt ár til þess að fríska upp á heimilið. „Þetta fer mjög vel af stað og búið að vera mikið að gera frá fyrsta degi útsölunnar. Fólk notar einnig heimasíðuna okkar í miklum mæli og nýtir sér „smellt og sótt“ . Útsalan stendur út janúar og þá eigum við von á nýjum og spennandi vörum,“ segir Hilmar.
Hús og heimili Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira