Danir kveðja grímuna, „kórónupassann“ og fjöldatakmarkanir Atli Ísleifsson skrifar 1. febrúar 2022 06:19 Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, var ánægð þegar hún tilkynnti um breytingarnar í síðustu viku. EPA Covid-19 er ekki lengur skilgreindur sem sjúkdómur sem ógnar dönsku samfélagi frá deginum í dag og hefur það í för með sér víðtækar afléttingar.
Grímaskyldan er ekki lengur í gildi og sömu sögu er til dæmis að segja af „kórónupassanum“ sem Danir hafa mikið notast við síðustu misserin. Þá verður næturlífinu engar skorður settar frá og með deginum í dag, að því er segir í yfirferð DR. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og heilbrigðisráðherrann Magnus Heunicke greindu frá afléttingunum í síðustu viku og að þær myndu taka gildi nú um mánaðamótin. Danir hafa þurft að búa við grímuskyldu á opinberum stöðum, í almenningssamgöngum og víðar allt frá ágúst 2020, með hléum þó. Þetta á ekki lengur við þó að gestir á sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum verði áfram hvattir til að notast við grímu. Notkun „kórónupassans“, sem sýndi fram á að viðkomandi hafi nýlega mælst með neikvætt PCR-próf, væri bólusettur, eða hafi nýverið greinst með Covid-19, og sem framvísa þurfti til að að sækja veitingastað, sundstaði, ýmsar menntastofnanir, fjölda vinnustaða og víðar, verður sömuleiðis hætt. Loks verða ekki lengur neinar fjöldatakmarkanir á samkomur á borð við íþróttaviðburði, leikhússýningar og tónleika.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Danmörk Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Sjá meira