Listería fannst í reyktum laxi Ísfirðings Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 18. febrúar 2022 11:24 Listería fannst í reyktum laxi og reyktum regnboga merktum Ísfirðingi. MAST Bakterían Listeria monocytogenes, eða listería, greindist í sýnum af reyktum laxi og reyktu regnboga sem framleiddur var undir nafni Ísfirðings. Dreifing og sala afurðanna hefur verið stöðvuð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Þar segir að reykti laxinn ætti ekki að vera í dreifingu í verslunum en neytendur gætu átt vöruna í frysti eða kæli. Fiskvinnslan Hrefna hefur tilkynnt Matvælastofnun að vegna varúðarsjónarmiða sé varað við neyslu og varan innkölluð frá neytendum. Innköllunin nær til dagsetningarinnar: „Síðasti notkunardagur 14.02.2022“. Framleiðslulotan var framleidd í desember, fryst hjá framleiðanda og sett á markað í janúar. Lotan var fyrst sett á markað í desember með síðasta notkunardegi 14.01.2022 og því er einnig varað við neyslu hennar. Nánar um vörulotu laxins: Vöruheiti: Ísfirðingur - REYKTUR LAX Dreifing: Til verslana Nettó, Kjörbúðanna, Krambúðanna, Iceland, Melabúðarinnar, Me og Mu, Heimkaup.is og Hraðbúðarinnar Hellissandi Geymsluskilyrði: Kælivara við 0-4 °C Síðasti notkunardagur: 14.1.02022; 14.02.2022; 08.03.2022 Framleiðandi: Fiskvinnslan Hrefna Þá greindist listería einnig í reyktum regnboga með síðasta notkunardegi 08.03.2022. Nánar um vöruna: Vöruheiti: Ísfirðingur - REYKTUR REGNBOGI Framleiðandi: Fiskvinnslan Hrefna Síðasti notkunardagur: 08.03.2022 Geymsluskilyrði: Kælivara við 0-4 °C Dreifing: Til verslana Nettó, Kjörbúðanna, Krambúðanna, Iceland, Melabúðarinnar, Me og Mu og Heimkaup.is Neytendur sem keypt hafa vörurnar eru beðnir að farga henni eða skila með því að hafa samband við Fiskvinnsluna Hrefnu ehf, s. 8943653 eða netfang fiskvinnslanhrefna@gmail.com. Listería getur orsakað sjúkdóm hjá bæði mönnum og dýrum og kallast sá sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarleg einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi.
Neytendur Innköllun Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira