Úrslitaleikurinn tekinn af Rússum og færður Frökkum Sindri Sverrisson skrifar 25. febrúar 2022 09:49 Chelsea á titil að verja í Meistaradeildinni eftir að hafa tryggt sér sigurinn á Drekavöllum í Portúgal í fyrra. Getty Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, ákvað í dag að stærsti leikur tímabilsins, úrslitaleikur Meistaradeildar karla, yrði færður frá Pétursborg í Rússlandi til Parísar í Frakklandi.
New York Times greinir frá þessu og segir að þetta hafi verið ákveðið sem refsing vegna innrásar Rússa inn í Úkraínu. Úrslitaleikurinn fer fram 28. maí og átti að fara fram á leikvangi í Pétursborg sem var byggður sérstaklega fyrir HM, og fjármagnaður af rússneska orkurisanum Gazprom sem er einnig stór bakhjarl UEFA. Þess í stað fer leikurinn fram á Stade de France, þjóðarleikvangi Frakka, en þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 2006 sem að úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram í landinu. UEFA hefur einnig ákveðið að færa alla leiki í sínum keppnum sem fara áttu fram í Rússlandi eða Úkraínu. Sem stendur hefur það aðeins áhrif á einn félagsliðaleik – næsta heimaleik Spartak Moskvu í Evrópudeildinni. Það verður svo að koma í ljós hvort að FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, fylgir fordæmi UEFA en í mars eiga Rússar að spila á heimavelli í umspili um sæti á HM í Katar.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Frakkland Mest lesið Sautján ára stelpa þénar hundruð milljóna í súrknattleik Sport Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Ólympíufari í snjóbrettafimi lést í snjóflóði Sport Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og stórleikur í NBA Sport Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Enski boltinn Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Fótbolti Viggó færir sig um set á nýju ári Handbolti Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Fleiri fréttir Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Sjá meira