Madeleine McCann: Foreldrarnir hafa ekki tapað voninni Árni Sæberg skrifar 22. apríl 2022 19:13 Kate og Gerry McCann foreldrar Madeleine á blaðamannafundi í Berlín árið 2007. Vísir/getty Foreldrar Madeleine McCann, sem hvarf árið 2007, segjast ekki hafa tapað voninni á að endurheimta dóttur sína. Þau segjast jafnframt fagna því að manni hafi formlega verið veitt staða sakbornings.
Kate og Gerry McCann hafa gefið út yfirlýsingu í tilefni þess að þýskum manni hafi formlega verið veitt réttarstaða sakbornings í tengslum við hvarf dóttur þeirra árið 2007. Yfirlýsinguna gáfu þau út á Facebook-síðunni Official Find Madeleine Campaign sem haldið hefur verið úti um árabil. Madeleine hvarf þegar hún var aðeins þriggja ára gömul á ferðalagi með foreldrum sínum í Portúgal. Nú hefur hinum þýska Christian Brückner verið veitt staða svokallaðs „arguido“ í Portúgal. Hann liggur þar með formlega undir grun í máli Madeleine, án þess þó að hafa verið kærður. Þessu fagna foreldrar hennar. Lögreglan í Portúgal hefur ekki fullyrt að Brückner sé grunaður um að hafa banað Madeleine og er málið rannsakað sem mannshvarf. Foreldrar hennar hafa aldrei gefið upp vonina á því að finna dóttur sína á lífi. „Þó líkurnar séu litlar höfum við aldrei gefið upp vonina á því að Madeleine sé enn á lífi og að við munum sameinast henni á ný,“ segir í tilkynningu foreldranna. Lögreglan í Þýskalandi hefur þó gefið út að hún telji Brückner hafa banað Madeleine.
Madeleine McCann Portúgal Þýskaland Erlend sakamál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Fleiri fréttir Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Sjá meira