Sprengja í doktorsnámi við HÍ undanfarin ár Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. maí 2022 12:10 Qiong Wang varði doktorsritgerð sína þann. Andmælendur voru dr. Sarah-Maria Fendt, prófessor við VIB Center for Cancer Biology, KU Leuven í Belgíu og dr. Paolo Ceppi, dósent við Syddansk Universitet í Danmörku. Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Óttar Rolfsson, prófessor. Auk hans sátu í doktorsnefnd Margrét Þorsteinsdóttir, prófessor, Skarphéðinn Halldórsson, prófessor og Sævar Ingþórsson, dósent. Kristinn Ingvarsson Qiong Wang, nemandi við Læknadeild Háskóla Íslands, varð á dögunum þúsundasti doktorsneminn til þess að verja ritgerð sína við skólann frá stofnun hans árið 1911. Aðeins sjö ár eru síðan fimm hundraðasti doktorsneminn lauk námi við skólann.
Í tilkynningu frá HÍ segir að það sé til marks um breytta tíma í kjölfar kórónuveirufaraldursins og sterka stöðu Háskóla Íslands sem alþjóðlegs rannsóknarháskóla að þúsundasti doktorsneminn sé frá Kína. Þar að auki hafi vörnin farið fram um netið þar sem bæði doktorsefnið og andmælendur voru stödd úti í heimi. Aðeins stjórnandi varnarinnar, Þórarinn Guðjónsson, prófessor og deildarforseti við Læknadeild, og leiðbeinendur Qiong Wang voru staddir í Hátíðasal Háskóla Íslands þegar vörnin fór fram. Doktorsritgerð Qiong Wang er á sviði líf- og læknavísinda og ber heitið „Auðkenning efnaskiptabreytinga samfara EMT í brjóstaþekjuvef“. Markmið rannsóknarinnar var að auka skilning á framgangi brjóstakrabbameina sem eru helsta dánarorsök meðal kvenna af völdum krabbameins á Íslandi og um heim allan. Rannsóknin hverfðist um svokallaða bandvefsumbreytingu (EMT) sem er frumuþroskunarferli sem talið er að æxlisfrumur geti virkjað. EMT er jafnframt talið geta aukið dreifingu æxlisfrumna milli vefja og þar með myndun meinvarpa. Umsjónarkennari og leiðbeinandi Qiong Wang var Óttar Rolfsson prófessor. Auk hans sátu í doktorsnefnd Margrét Þorsteinsdóttir prófessor, Skarphéðinn Halldórsson prófessor og Sævar Ingþórsson dósent. Hundrað og þrjú ár eru síðan fyrsta doktorsvörnin fór fram við Háskóla Íslands en það var Páll Eggert Ólason, lögfræðingur og fyrrverandi prófessor og rektor HÍ, sem fyrstur hlaut doktorsnafnbót við skólann fyrir rit sitt um Jón biskup Arason. Fyrst kvenna til að ljúka doktorsprófi var Selma Jónsdóttir, listfræðingur og fyrsti forstöðumaður Listasafns Íslands, árið 1960. Doktorsverkefni hennar fjallaði um býzanska dómsdagsmynd í Flatatungu. „Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að fyrsta vörnin fór fram árið 1919 og óhætt er að segja að doktorsnám við Háskóla Íslands hafi sprungið út á síðustu tveimur áratugum. Undanfarin ár hafa á bilinu 60-90 doktorsnemar varið ritgerðir sínar við skólann og aðeins eru tæp sjö ár síðan 500. doktorinn lauk námi frá skólanum,“ segir í tilkynningunni. Þessa stundina stunda um 700 nemendur doktorsnám við Háskóla Íslands og leggja þannig sitt af mörkum til þekkingarleitar hins alþjóðlega vísindasamfélags um leið og þau gera Háskóla Íslands kleift að rækja samfélagshlutverk sitt sem stærsti og víðtækasti háskóli landsins. „Þetta eru mjög merk og ánægjuleg tíðindi og nýja doktornum fylgja að sjálfsögðu bestu hamingjuóskir,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. „Það er ljóst að efling doktorsnámsins við Háskóla Íslands hefur styrkt verulega stöðu hans á sviði rannsókna og nýsköpunar og þess sér ótvírætt stað á alþjóðlegum vettvangi. Þann góða árangur ber ekki síst að þakka áherslu á doktorsnám og framlagi doktorsnema til aukinna rannsókna við skólann.“ Tölfræði um doktorsnám Háskóla Íslands má finna á vef skólans. Myndir Kristins Ingvarssonar frá vörninni fylgja. Á annari má sjá doktorsefnið á skjá í Hátíðasal en á hinni má sjá doktorsefnið og andmælendur á skjá og Þórarin Guðjónsson, prófessor og deildarforseta við Læknadeild, og þá Óttar Rolfsson og Sævar Ingþórsson úr hópi leiðbeinenda Qiong Wang í Hátíðasal þegar vörnin fór fram.
Skóla - og menntamál Háskólar Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira