Cameron Young var í forystu eftir fyrsta hring á átta höggum undir pari vallarins. Hann er enn í efsta sæti, þrátt fyrir að vera ekki farinn af stað í dag.
Næstir á eftir honum eru þeir Taylor Gooch og Rory McIlroy á sex höggum undir pari. Gooch hefur leikið fyrstu tólf holur dagsins á tveimur höggum undir pari, en McIlroy er enn á æfingasvæðinu.
Hástökkvarar dagsins hingað til eru hins vegar Svíinn Henrik Stenson og Spánverjinn Sergio Garcia. Báðir eru þeir rétt rúmlega hálfnaði með hringinn og báðir hafa þeir leikið á fjórum höggum undir pari vallarins.
Þeir sitja nú hlið við hlið í 41. sæti listans ásamt 17 öðrum kylfingum á einu höggi undir pari og hafa báðir rokið upp um 78 sæti frá því í gær.
Listan í heild sinni má sjá með því að smella hér.