Blikar tilkynna liðsstyrk | Eiga bara eftir að sækja Kana Atli Arason skrifar 25. júlí 2022 19:31 Clayton Ladine mun leika með Blikum á næsta leiktímabili. Facebook/Körfuknattleiksdeild Breiðabliks Breiðablik hefur bætt við nýjum leikmanni í leikmannahóp sinn fyrir komandi átök í Subway-deild karla. Liðið sótti Clayton Riggs Ladine frá Hraunamönnum í næst efstu deild. Ladine skoraði 23,9 stig, tók 5,9 fráköst og gaf 8,1 stoðsendingu í 26 leikjum með Hraunamönnum á síðasta tímabili. Var hann stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar og sá áttundi yfir flest framlagsstig. Ladine mun bæði leika með meistaraflokki Breiðabliks á næsta tímabili og taka að sér þjálfun hjá yngri flokkum liðsins. „Clayton þykir traustur bakvörður, með gott skot og að auki þótti hann einstaklega góður liðsmaður, bæði innan og utan vallar og stóð sig vel í þjálfun yngri flokka, en hann mun jafnframt taka að sér þjálfun hjá deildinni,“ skrifaði KKD. Breiðabliks í tilkynningu sinni fyrr í dag. Clayton Riggs Ladine er Bandaríkjamaður með franskt vegabréf og mun hann því ekki fylla ígildi Kana hjá liðinu. Það er tekið fram í tilkynningu félagsins að liðið verði fullmannað þegar búið er að finna Bandaríkjamann fyrir komandi leiktímabil en Samuel Prescott Jr. sinnti því hlutverki á síðasta leiktímabili hjá Blikum. >
Ladine skoraði 23,9 stig, tók 5,9 fráköst og gaf 8,1 stoðsendingu í 26 leikjum með Hraunamönnum á síðasta tímabili. Var hann stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar og sá áttundi yfir flest framlagsstig. Ladine mun bæði leika með meistaraflokki Breiðabliks á næsta tímabili og taka að sér þjálfun hjá yngri flokkum liðsins. „Clayton þykir traustur bakvörður, með gott skot og að auki þótti hann einstaklega góður liðsmaður, bæði innan og utan vallar og stóð sig vel í þjálfun yngri flokka, en hann mun jafnframt taka að sér þjálfun hjá deildinni,“ skrifaði KKD. Breiðabliks í tilkynningu sinni fyrr í dag. Clayton Riggs Ladine er Bandaríkjamaður með franskt vegabréf og mun hann því ekki fylla ígildi Kana hjá liðinu. Það er tekið fram í tilkynningu félagsins að liðið verði fullmannað þegar búið er að finna Bandaríkjamann fyrir komandi leiktímabil en Samuel Prescott Jr. sinnti því hlutverki á síðasta leiktímabili hjá Blikum. >
Breiðablik Subway-deild karla Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira