Grafíski hönnuðurinn Gréta Þorkelsdóttir og myndlistarmaðurinn Joe Keys hafa skrifað texta sem er partur af bókverkinu en bókverkið verður gefið út að vinnustofu lokinni með útgáfuhófi þann 20. ágúst. Blaðamaður tók púlsinn á Sölku og Tótu.

Hver var kveikjan að samsýningu ykkar tveggja?
Við höfum unnið mikið saman á síðustu árum, eina sýningu á sumri síðan 2019.
Það verður alltaf eitthvað nýtt til á milli okkar hvort sem við erum að vinna í vídjó, gjörning eða fara í sund, það er alltaf gaman og hvetjandi að vera í samstarfi.
Teikning er grunnurinn að öllum hugmyndum sem við framkvæmum og við vildum staldra við þar og gefa teikningunni farveg í prentuðu bókverki. Það lá því beint við fyrir okkur að sækja um opna vinnustofu saman þar sem við myndum búa til bók því að sá miðill er mjög tímatengdur. Bókverkið er um ferlið og ferlið er um bókverkið.

Hvaðan sækið þið innblástur í listsköpun ykkar?
Okkur finnst skemmtilegast þegar maður nær því ástandi þegar allt er innblástur, skrítnir hlutir og áferðir í umhverfinu, tilfinningar, samtöl við vini og öll menning sem við neytum. Við erum til dæmis búnar að spila mikið af Pavement hérna í vinnustofunni. Í þessu tilfelli notuðum við þartilgerða gestabók sem fýsískan innblástur þar sem gestir opnu vinnustofunnar gátu skrifað orð eða hugleiðingu og gefið okkur þannig efni eða kveikju til þess að vinna út frá. Samtöl okkar við þá sem komu í heimsókn voru sömuleiðis innblástur fyrir prentverkin.
Fólk hefur ýmist verið að skrifa nöfnin sín, hlýjar kveðjur eða línur á við:
„Síðasti hluturinn sem þú týndir og fannst aftur“
„Það sem er satt“
„Jesus loves you - John 3:16“
„4th eye“
„Vinir að spjalla um list með gígantískar hendur“
Bókverkið í heild sinni er heimur sem samanstendur af táknmyndum, teygðum symbolisma, tilvísunum í epískar sögur og móment.

Hvernig fer opin vinnustofa fram?
Við útbjuggum prentaðstöðu í Gryfjunni, Ásmundarsal sem við notuðum sem vinnustofu í fjórar vikur. Verkefni hvers dags var að búa til prent fyrir eina síðu hvor og fjölfalda í tuttugu eintökum í prent. Prentin eru ýmist gerð með dúkristum, þurrnálaprenti eða einþrykki/monoprenti. Það er áhugavert að vinna í rými þar sem maður er berskjaldaður og mikill erill í gangi. Við erum í rauninni að færa okkur úr okkar eigin stúdíóum og vinna þvert á hugmyndina um myndlistarmanninn, einfarann, læstan inn í stúdíóinu sínu að draga verkin upp úr tóminu.
Við bjuggum okkur til pressu til að víkja úr vegi allri frestunaráráttu og ofhugsun og fagna leikgleði og heimsóknum frá vinum og nýjum vinum.
Hvað er á döfinni?
Við erum að fara að DJ-a í frábæru lokahófi sýningarinnar Óþekktarormar: Orðrómur í Harbinger næstkomandi laugardag. Síðan er Tóta er á leiðinni á bókverkamessu í Danmörku með Prenti og Vinum, en annars er það bara leggja drög að næstu verkefnum og búa okkur undir haustið.
