Ritskoðendur í Kína breyttu endinum á Skósveinunum: Gru rís upp Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. ágúst 2022 08:07 Gru ásamt þremur skósveina sinna í nýjustu myndinni um ævintýri þeirra. Ritskoðendur í Kína breyttu endinum á teiknimyndinni Skósveinunm: Gru rís upp. Ritskoðunin er enn eitt dæmi þess að yfirvöld í Kína breyti Hollywood-myndum eða ritskoði þær fyrir innlendan markað.
Fjöldi skjáskota úr kínversku útgáfu myndarinnar hefur gengið á milli fólks á samfélagsmiðlinum Weibo, helsta innlenda samfélagsmiðli Kína sem er nokkuð sambærilegur Twitter. Þar hafa notendur greint frá því að búið sé að bæta viðauka í lok myndarinnar og þannig búa til nýjan endi. Í stað þess að Wild Knuckles, illmenni og einni af aðalpersónum myndarinnar, takist að sviðsetja dauða sinn og sleppa undan yfirvöldum eins og í upphaflegu myndinni kemur fram í nýja viðaukanum að hann hafi verið handtekinn af lögreglunni og hlotið tuttugu ára fangelsisdóm. Hluti myndarinnar gerist í Chinatown-hverfi San Francisco-borgar þar sem verið er að fagna kínverska nýárinu. Þar kemur einnig fram að Gru hafi snúið aftur til fjölskyldu sinnar og að „hans stærsta afrek sé að vera faðir þriggja dætra sinna“. En þess má geta að í myndinni er Gru enn bara ungur strákur og eiga enn eftir að líða mörg ár áður en hann kynnist ættleiddum dætrum sínum. Dreifingaraðilar kvikmyndarinnar í Kína hafa ekki svarað fyrirspurnum fjölmiðla út í þessar breytingar á myndinni. Yfirvöld í Kína setja takmark á fjölda erlendra kvikmynda í innlendum bíóhúsum og er mörgum Hollywood-myndum sem eru þar sýndar breytt, þá ýmist með fleiri eða færri atriðum.
Hollywood Kína Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Jakkafataklæddir ungherrar til friðs á Íslandi Nýjasta teiknimyndin um skósveinana nýtur nú óvæntra vinsælda meðal eldri hópa, þökk sé óvenjulegum færslum á samfélagsmiðlum. Ekki hefur þótt ástæða til að banna hópana í kvikmyndahúsum hér á landi eins og sums staðar í heiminum. 5. júlí 2022 20:01 Byrjuð að framleiða Aulann mig 4 Framleiðsla er hafin á Aulanum mér 4 segir leikarinn Steve Carell sem talar fyrir illmennið Gru. Carell segir myndina rökrétt framhald af þriðju mynd seríunnar, hún fjalli um það hvernig fjölskylda þeirra Gru og Lucy virki sem heild nú þegar þau eru komin með börn. 27. júní 2022 16:12 Mest lesið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Fyrst skíði og nú golf Lífið „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Lífið Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Djöfullinn klæðist Prada á ný Bíó og sjónvarp Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Tónlist Einar fékk meira hár en Baldur Lífið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið Fleiri fréttir Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira
Jakkafataklæddir ungherrar til friðs á Íslandi Nýjasta teiknimyndin um skósveinana nýtur nú óvæntra vinsælda meðal eldri hópa, þökk sé óvenjulegum færslum á samfélagsmiðlum. Ekki hefur þótt ástæða til að banna hópana í kvikmyndahúsum hér á landi eins og sums staðar í heiminum. 5. júlí 2022 20:01
Byrjuð að framleiða Aulann mig 4 Framleiðsla er hafin á Aulanum mér 4 segir leikarinn Steve Carell sem talar fyrir illmennið Gru. Carell segir myndina rökrétt framhald af þriðju mynd seríunnar, hún fjalli um það hvernig fjölskylda þeirra Gru og Lucy virki sem heild nú þegar þau eru komin með börn. 27. júní 2022 16:12