„Þetta var ákveðið tjón fyrir okkur. Stundum þarf maður að sætta sig við ákveðið tap áður en maður tapar meira,“ segir Almar í samtali við Vísi. Málið sé einfalt. Kostnaðurinn hafi verið hár og innkoman of lág.
Fjallað var um opnunina á vef Veitingageirans í maí í fyrra. Þá var Ólöf til viðtals.
„Almar er draumóramaðurinn í okkar sambandi, hann hafði dreymt um að eiga bakarí og sá draumur rættist 2009 og síðan á hann (við) bakarí í dag, það nýjasta er á Flúðum,“ sagði Ólöf.
Þau reka einnig bakarí í Hveragerði, Selfossi og á Hellu. Þar gengur reksturinn vel.
„Þar erum við á þjóðvegi 1, í alfaraleið. Flúðir eru ekki alveg í leiðinni,“ segir Almar. Ellefu þúsund íbúar séu í Árborg, þrjú þúsund í Hveragerði og Hella sístækkandi.
„Litli staðurinn var ekki alveg að ganga upp hjá mér. Það er erfitt að reka þetta fjóra mánuði í ári,“ segir Almar. Hann vísar til þess hve miklu stærra samfélagið sé á sumrin, með íslenskum og erlendum ferðamönnum. En svona sé staðan víða úti á landi.
„Kostnaðarliðirnir eru jafnháir á veturna og sumrin. Leigan lækkar ekki á veturna, þessi fasti kostnaður,“ segir Almar.
Nokkur fjöldi hafi lagt leið sína í bakaríið í gær, síðasta opnunardaginn.
„Það var fín sala þannig séð. Ég veit að það er mikil eftirsjá hjá Hrunamönnum. Þetta er drepleiðinlegt,“ segir Almar. Hrunamenn séu bara ekki nógu margir, ekki enn þá.
Almar horfir þó björtum augum fram á veginn. Þegar einn gluggi lokist þá hljóti annar að opnast, eins og hann kemst að orði.