Innlent

Starfs­menn Þjóð­minja­safns harma verk­lag Lilju

Jakob Bjarnar skrifar
Harpa, nýskipaður þjóðminjavörður og Lilja sem skipaði hana án auglýsingar. Það hefur valdið verulegri óánægju; bæði er Lilja talin hafa forsmáð fræðin og brotið gegn góðum stjórnsýsluháttum með því að skipa í stöðuna án auglýsingar.
Harpa, nýskipaður þjóðminjavörður og Lilja sem skipaði hana án auglýsingar. Það hefur valdið verulegri óánægju; bæði er Lilja talin hafa forsmáð fræðin og brotið gegn góðum stjórnsýsluháttum með því að skipa í stöðuna án auglýsingar. stjr

Enn ein yfirlýsingin hefur nú litið dagsins ljós þar sem skipan Lilju D. Alfreðsdóttur safnaráðherra á Hörpu Þórsdóttur sem nýjum þjóðminjaverði er fordæmd. Þannig liggur fyrir að Harpa er ekki að taka við stöðunni við ákjósanlegustu aðstæður.

Starfsmannafélag Þjóðminjasafns Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er undir þá gagnrýni sem sett hefur verið fram vegna skipunarinnar.

Gagnrýnin beinist ekki að Hörpu

„Starfsmannafélag Þjóðminjasafns Íslands tekur undir þá gagnrýni sem komið hefur fram hjá fagfélögum og BHM á verklagi menningar- og viðskiptaráðuneytis við skipun þjóðminjavarðar þann 25.8.2022,“ segir í yfirlýsingunni sem er til þess að gera stutt en hana sendir fyrir hönd félagsins Ármann Guðmundsson sérfræðingur.

Þar segir ennfremur:

„Félagið harmar að ráðuneyti og ráðherra hafi valið að auglýsa ekki embættið til umsóknar. Verklagið lýsir metnaðarleysi ráðuneytisins í garð Þjóðminjasafns Íslands, ber vott um ógagnsæja stjórnsýslu og kastar rýrð á málaflokkinn í heild.“

Í yfirlýsingunni er tekið sérstaklega fram að hér sé um að ræða gagnrýni á verklagi, en ekki að spjótum sé beint að þeim sem skipuð var og er það í takti við aðrar yfirlýsingar sem fram hafa komið um þessa skipan:

„Gagnrýnin beinist alfarið að ferli skipunarinnar en ekki að Hörpu Þórsdóttur.“

Framsókn leiði handráðningar í stöður á vegum hins opinbera

Vísir hefur greint ítarlega frá þessum máli en gagnrýnin hefur ekki síst byggst á stjórnsýslulegum sjónarmiðum. 

Í viðtali við fréttastofu segir Lilja að Harpa sé hæf en gagnrýnin hefur ekki snúið að því heldur hvernig að málum er staðið. Haukur Arnþórsson stjórsýslufræðingur segir að með þessum handráðningum ráðherra sé verið að hverfa ár og áratugi aftur í tímann:

„Fyrir fáeinum árum þegar farið var að handráða eða ráða með flutningi í ráðuneytisstjórastöður og stöður forstöðumanna ríkisstofnana var látið eins og ekki þyrfti umræðu um málið - ekki þyrfti nema einfalda lagaheimild - og bingó - nú þyrfti ekki lengur auglýsingu og ekkert ráðningarferli og enginn gæti sagt neitt. 

Þegar hátt hlutfall ráðuneytisstjóra er handráðinn - undir forystu Framsóknar, forystu sem Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn hafa síðan fylgt - þarf að staldra við. 

Á hvaða forsendum er þessi breyting á ráðningum gerð, hvaða afleiðingar hefur hún og hvað segir stjórnarandstaðan, hagsmunaaðilar (stéttarfélögin) og almenningur?“ spyr Haukur í nýlegri grein um málið.


Tengdar fréttir

Forn­leifa­fræðingar og þjóð­fræðingar gefa lítið fyrir svör Lilju

Stjórnir Félags fornleifafræðinga og Félags þjóðfræðinga gefa lítið fyrir svör Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, við gagnrýni á ákvörðun hennar um skipun nýs þjóðminjavarðar. Að mati félaganna lýsir skipunin alvarlegum skilningsskorti ráðherrans á hlutverki Þjóðminjasafnsins og mikilvægis þess í íslensku samfélagi.

Ekki í fyrsta sinn sem Lilja fari illa með vald sitt

Þingmaður Samfylkingarinnar segir að skipun menningar- og viðskiptaráðherra á þjóðminjaverði sé ekki fyrsta dæmið um misbeitingu valds hjá ráðherranum. Frumvarp sem hindrar klíkuráðningar er í vinnslu.

Ó­vandað, ó­gagn­sætt og metnaðar­laust ráðningar­ferli

Félag fornleifafræðinga lýsir yfir miklum vonbrigðum á því hvernig staðið var að skipun nýs þjóðminjavarðar í bréfi sem félagið sendi menningar- og viðskiptaráðherra í dag. Ráðningarferlið hafi verið óvandað, ógagnsætt og metnaðarlaust.

Taka saman gögn til að bera saman skipanir án auglýsinga

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ætlar að láta taka saman tölfræði í þeim tilgangi að skoða hvort í vöxt færist að ráðherrar beiti heimild til að flytja starfsfólk til milli embætta. Þetta sagði Katrín í samtali við fréttastofu í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×