Skoðun

Að­stoðum Úkraínu með 1% af fjár­lögum, við eigum allt undir

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar

Úkraína þarf hjálp. Drullusokkur í Rússlandi ákvað að Rússar skyldu ryðjast inn í Úkraínu og drepa þar bræður sína og systur. En Úkraína verst hetjulega svo vekur aðdáun um allan heim. Óbeint eigum við allt undir baráttu þeirra gegn innrásarliðinu. Og hvað er átt við með því? Við sem smáþjóð eigum allt undir því að samskipti þjóða byggi á lögum og samningum og gagnkvæmri virðingu. Að hægt sé að stunda eðlileg viðskipti og önnur gagnleg samskipti. Við eigum allt undnir því að fullveldi þjóða, stórra og smárra, sé virt af öllum hinum. Að í alþjóða samskiptum gildi ekki hnefaréttur þeirra stóru, að sá stóri geti kramið þann litla á meðan aðrir horfi aðgerðalausir á. Ef heimurinn væri þannig myndi sjálfstætt Ísland verða skammvinnt ástand í veraldarsögunni.

Við, þótt lítil séum, eigum því að aðstoða Úkraínu eins og við getum. En við getum ekki sent þeim vopn, við getum ekki tekið hingað úkraínska hermenn í þjálfun, við höfum ekki leyniþjónustu sem getur aflað gagnlegra upplýsinga. Okkar styrkur er ekkert af þessu. Okkar styrkur er að vera rík þjóð. Ein af þeim allra ríkustu. Og öfugt við nágranna okkar þá þurfum við ekki að fást við fordæmalausan orkuskort sem rýrir lífskjör fólks um alla Evrópu um þessar mundir. Við græðum á háu orkuverði á meðan nágrannar okkar þjást. En samt ætla þeir að hjálpa Úkraínu meira en við gerum.

Við ættum því að veita Úkraínu efnahagsaðstoð sem samsvarar 1% af fjárlögum. Minna má það ekki vera, er eiginlega of lítið, 2% væri mun eðlilegra. Til að afla tekna eitthvað upp í þessi útgjöld ættum við að taka til skoðunar að hækka kolefnisgjald á bensín og olíur. Um kannski 10-20 kr/l. Það mun gera það að verkum að við munum nota örlítið minna af olíu. En nota örlítið meira af grænni orku. En það er einmitt það sem við viljum gera burtséð frá stríði í Evrópu. Það er enda miklu meiri þörf á að brenna einum lítra af olíu í aðþrengdri Úkraínu en á lánsömu Íslandi. Varminn af þeim bruna er mun betur kominn hjá hrjáðum Úkraínumönnum en í íslenskum orkualsnægtum.

Fjárlög voru kynnt í dag, 12. September 2022. Þetta er mín tillaga að breytingu fjárlaga.

Áfram Úkraína, Slava Ukraini

Höfundur er lektor, viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri. 




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×