Segir offituaðgerðir geta komið í veg fyrir sjúkdóma eins og krabbamein Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 20. september 2022 19:31 Aðalsteinn Arnarson skurðlæknir á Klíníkinni segir margvíslega ástæðu fyrir þessari sprengingu í efnaskiptaaðgerðum. Hann segir úrelt að segja við fólk sem glímir við offitu að það eigi bara að borða minna og hreyfa sig meira. Fleira þurfi að koma til. Vísir Gríðarleg fjölgun hefur orðið á magaerma-og hjáveituaðgerðum hér á landi síðustu tvö ár. Langflestar eru framkvæmdar á einkastofu. Kviðarholssskurðlæknir á Klíníkinni segir slíkar aðgerðir geta komið í veg fyrir alvarlega sjúkdóma eins og krabbamein. Úrelt sé að segja of feitu fólki að borða minna og hreyfa sig
meira
Talið er að einn af hverjum þremur Íslendingum sé of þungur og hluti þeirra gími við offitu. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin skilgreinir offitu þegar líkamsþyngdarstuðul eða BMI er yfir 30 og alvarlega offitu þegar BMI er 35 eða hærra. Fréttastofa óskaði eftir upplýsingum frá Landlæknisembættinu um hversu margir séu skilgreindir með offitu hér á landi og var tjáð að ekki væri hægt að veita slíkar upplýsingar. Þá óskaði fréttastofa viðbragða stofnunarinnar við því að svo margar aðgerðir væru gerðar hér á landi og var sagt að ekki væri hægt að verða við beiðninni á þeim tímapunkti. Á Heilsugæslunni kom fram að til eru slíkar tölur um grunnskólabörn. Á síðast ári voru 18% þeirra skilgreind í ofþyngd og 7% með offitu. Gríðarleg fjölgun aðgerða Samkvæmt upplýsingum hjá Klíníkinni einkarekinni læknamiðstöð voru um 20% Íslendinga með BMI yfir 30 árið 2007. Áætla megi að um fimmtungur þeirra sé með BMI yfir 35 eða um 12.000 manns en það hefur verið skilgreind alvarleg offita. Búast má við að vandinn hafi aukist síðan árið 2007. Ef litið til svokallaðra offituaðgerða eins og magaerma-og hjáveituaðgerða þá hefur þeim fjölgað gríðarlega. Hátt í tvöþúsund aðgerðir hafa til að mynda verið gerðar á Klíníkinni síðustu tvö ár en þær voru 240 á sömu stofu árið 2019. Í dag kostar um tólf hundruð þúsund krónur að fara í slíka aðgerð þar. Landspítalinn hefur gert um sextíu til níutíu aðgerðir á en þær eru nánast ókeypis þar.Ekki er vitað hversu margir fara til útlanda í slíkar aðgerðir en búast má við að það sé talsverður fjöldi. Aðalsteinn Arnarson skurðlæknir á Klíníkinni segir margvíslega ástæðu fyrir þessari sprengingu. „Þetta hefur verið svolítið uppsafnaður vandi svo margir hafa verið að fara í aðgerðirnar síðustu ár. Þær eru betri en áður. Þá er þessi vandi mikill hér, við getum í raun borið okkur saman við Bandaríkin og Bretland sem tróna yfirleitt á toppnum í svona tölfræði,“ segir Aðalsteinn. Aðalsteinn segir að fólk þurfi uppfylla ákveðin skilyrði til að komast í slíka aðgerð á Klíníkinni. „Almenna viðmiðið sem við notum og er notað á flestum stöðum er þyngdarstuðull BMI upp á 35 til 40. Ef síðan koma þarna sjúkdómar eins og sykursýki eða kæfisvefn eða aðrar ástæður þá er ábending í aðgerð sterkari. Þar getum við leyft okkur að fara undir þessa tölu þar sem rannsóknir sýna að aðgerðirnar gera gagn undir BMI uppá 27, sérstaklega ef um er að ræða sykursýki,“ segir hann Úrelt að segja fólki í offitu að borða bara minna Hann segir úrelt að segja fólki í mikilli yfirþyngd að það eigi bara að borða minna. „Þetta hugarfar að segja við sjúklinginn að þú verður bara að borða minna og hreyfa þig meira er gamaldags sjónarmið. Í dag vitum við að þetta erum ýmis undirliggjandi sjónarmið sem valda offitu eins og t.d. hormónabreytingar og boðskipti milli meltingarvegar og heila,“ segir hann. Samtök um líkamsvirðingu hafa gagnrýnt slíkar aðgerðir þær séu ekki hættulausar. Aðalsteinn segir það rétt að eins og í öllum aðgerðum sem fela í sér inngrip geti fylgikvillar komið fram. Hættulegast sé ef komi leki í maga eftir aðgerð en það sé afar sjaldgæft. Slíkt gerist í einni af hverri fimm hundruð aðgerðum. Það sé fimm prósent meiri hætta á garnaflækjum sem geti haft talsvert alvarlegar afleiðingar. Algengt sé að fólk skorti vítamín og steinefni, járn og kalk. Það sé því t.d. hætta á beinþynningu ef fólk taki ekki auka skammt bætiefna eftir aðgerð. Bakflæði sé algengara og aukin hætta á alkahólisma. „Þú þarf minna áfengi, áhrifin eru hraðari og það brotnar ekki eins hratt niður og svo er talað um yfirfærslu á einni fíkn yfir í aðra þ.e. það getur verið hætta á að það gerist,“ segir hann. Getur komið í veg fyrir krabbamein Hann segir að Klíníkin stefni nú á að bjóða líka upp á sálfræði-eða geðlæknaaðstoð samfara slíkum aðgerðum því oft sé offita flókinn vandi. Aðalsteinn segir hins vegar að ávinningur aðgerðanna sé gríðarlega mikill fyrir langflesta og hún geti komið í veg fyrir alvaralega sjúkdóma eins og sykursýki og kæfisvefn. „Ofþyngd hefur mjög neikvæð áhrif á nokkrar tegundir krabbameina. Þannig er tíðni krabbameina í brjósti alltaf tvöföld hjá konum í yfirþyngd samanborið við konur í kjörþyngd. Þannig að það er mikill ávinningur af því að vera í kjörþyngd eða komast þangað,“ segir Aðalsteinn. Þá nái langflestir miklum árangri. „Þegar einstaklingur er komin í mikla ofþyngd þá eru í dag mjög fá ráð önnur en þessar aðgerðir sem hafa langvarandi áhrif,“ segir hann. Hann segir að á næstu tíu til tuttugu árum megi búast við að lyf verði komin á markað sem geti haft svipuð áhrif og þessar aðgerðir . Þá sé veri að skoða nýja einfalda tækni fyrir þá sem eru í mikilli yfirþyngd en ná ekki viðmiði í svona aðgerðir. „Þar má nefna magablöðrur sem eru settar í magann og þrengja þannig að. Þær fara svo eftir nokkra mánuði. Það er verið að prófa þetta erlendis og við fylgjumst með. Þá þarf fólk á sama tíma að gera bragabót á hreyfingu og fæði á sama tíma. Mér sýnist að aðgerðir eins og þessar séu að skila þó nokkuð góðum árangri fyrir þá sem vilja missa svona 15% af líkamsþyngd,“ segir Aðalsteinn að lokum.
Heilsa Landspítalinn Heilbrigðismál Tengdar fréttir Dýrar og óafturkræfar offituaðgerðir siðferðislega ámælisverðar Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu, gagnrýnir harðlega „einhliða umfjöllun“ Fréttablaðsins um offituaðgerðir hjá Klíníkinni, sem hún segir skaðlegra fyrirbæri en þar er látið í veðri vaka. 15. maí 2021 12:58 Margfalt fleiri fara í aðgerð vegna offitu Klíníkin framkvæmir metfjölda offituaðgerða árið 2021 og stefnir í að þær verði tvöfalt fleiri en í fyrra. 9. maí 2021 16:34 Mikil eftirspurn eftir magaaðgerðum vegna offitu Eftirspurn eftir aðgerðum vegna offitu hefur aukist hér á landi. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru gerðar hátt í fimm hundruð skurðaðgerðir á maga vegna offitu en langflestar voru gerðar á einkastofum. 21. desember 2019 22:00 Mest lesið Björk styður æskuvinkonu sína sem sætir svívirðingum Innlent Bein útsending: Mótmæla handtöku Möggu Stínu Innlent Magga Stína handtekin í nótt af Ísraelsher Innlent Langþreyttur á TikTok áreiti og rasískum orðsendingum skólakrakka Innlent Óheppileg „læk“ Reykjavíkurborgar: „Okkur þykir þetta miður“ Innlent Hitnar undir feldi Lilju Innlent Hefur áhyggjur af unga fólkinu Innlent Dularfull brotlending nærri Area 51 Erlent Keyrt á vegfaranda í Skeifunni Innlent Átján sagt upp í Seljahlíð Innlent Fleiri fréttir Útlendingastofnun: Ekkert bendi til ómannúðlegrar meðferðar í Króatíu Hitnar undir feldi Lilju Játaði að hafa stolið tugum milljóna úr dánarbúi móður sinnar Játaði áralangt kynferðisofbeldi gegn stjúpdóttur sinni Bein útsending: Mótmæla handtöku Möggu Stínu Fékk aðsvif og missti bílinn yfir á annan vegarhelming Hefur áhyggjur af unga fólkinu Ungir Sjálfstæðismenn vilja stöðva hælisveitingar Sér fram á margar klukkustundir í fullkominni óvissu Takmörk á því hversu langt Ísraelar geti farið til að verja hafnbann Keyrt á vegfaranda í Skeifunni Óheppileg „læk“ Reykjavíkurborgar: „Okkur þykir þetta miður“ Hafa rætt við ísraelsk stjórnvöld og sett fram kröfur vegna Margrétar Björk styður æskuvinkonu sína sem sætir svívirðingum „Minnir á saltveðrið mikla“ Magga Stína tekin höndum og gular viðvaranir í kortunum Stúlkan komin í leitirnar Bændum verulega brugðið vegna breytinga á búvörulögum Ákærður fyrir stunguárás á Seltjarnarnesi Magga Stína handtekin í nótt af Ísraelsher Átján sagt upp í Seljahlíð Fyrri degi heimsóknar lauk með kvöldverði í forsetahöllinni Sást blóðugur fyrir utan fjölbýlishús Langþreyttur á TikTok áreiti og rasískum orðsendingum skólakrakka „Það er sárt að þurfa að horfa á eftir þeim“ Ekki hlutverk stjórnarandstöðunnar að halda uppi stemmingu Segir réttast að ráðherra dragi drögin í heild sinni til baka Spyr hvort aflífa þurfi sig vegna mjaðmaskipta Þungt símtal bónda í Skagafirði Lögregla lýsir eftir fimmtán ára stúlku Sjá meira
Dýrar og óafturkræfar offituaðgerðir siðferðislega ámælisverðar Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu, gagnrýnir harðlega „einhliða umfjöllun“ Fréttablaðsins um offituaðgerðir hjá Klíníkinni, sem hún segir skaðlegra fyrirbæri en þar er látið í veðri vaka. 15. maí 2021 12:58
Margfalt fleiri fara í aðgerð vegna offitu Klíníkin framkvæmir metfjölda offituaðgerða árið 2021 og stefnir í að þær verði tvöfalt fleiri en í fyrra. 9. maí 2021 16:34
Mikil eftirspurn eftir magaaðgerðum vegna offitu Eftirspurn eftir aðgerðum vegna offitu hefur aukist hér á landi. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru gerðar hátt í fimm hundruð skurðaðgerðir á maga vegna offitu en langflestar voru gerðar á einkastofum. 21. desember 2019 22:00